Fótbolti

Sjáðu stór­glæsi­legt mark Rúnars og mark Birkis í gær | Mynd­band

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Rúnar í leik með Grasshopper í sumar á KR-vellinum.
Rúnar í leik með Grasshopper í sumar á KR-vellinum. Vísir/Anton Brink
Birkir Bjarnason og Rúnar Már Sigurjónsson voru báðir á skotskónum í 3-1 sigri Basel gegn Grasshoper í svissnesku úrvalsdeildinni í gær.

Birkir kom Basel yfir með öðru marki sínu á tímabilinu á 29. mínútu með skoti af stuttu færi eftir að hafa byrjað sóknina við eigin vallarhelming.

Sjá einnig:Birkir og Rúnar báðir á skotskónum í Íslendingaslagnum

Birkir var nálægt því að bæta við öðru marki síðar en Seydou Doumbia kom Basel 2-0 yfir áður en Rúnar Már minnkaði muninn.

Skoraði hann þá með viðstöðulausu skoti eftir að heimamenn höfðu skallað hornspyrnu Kim Kallstrom í burtu. Glæsilegt mark hjá Rúnari sem hefur byrjað vel hjá Grasshopper.

Doumbia bætti við öðru marki sínu stuttu fyrir leikslok og tryggði Basel sjöunda sigurinn í röð.

Mark Birkis kemur eftir hálfa mínútu í spilaranum hér fyrir neðan en mark Rúnars kemur mínútu síðar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×