Stílistinn á mínu heimili er maðurinn minn Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 16. apríl 2016 10:00 Sigrún Magnúsdóttir „
Ég er svo smávaxinn að hér áður fyrr þorði ég aldrei út úr húsi nema á háum hælum en ég læt það þó vera núna. Stílistinn á mínu heimili er hins vegar maðurinn minn, hann hefur í gegnum tíðina séð um að kaupa föt á mig, honum hefur þótt það gaman og gert það um nokkurra ára skeið,“ svarar Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, spurð um litríkan klæðaburð á þingi síðustu misseri.Hattur Sigrúnar vakti athygli á ríkisstjórnarfundi fyrr í vikunni.Sigrún Magnúsdóttir, umhverfisráðherra og þingmaður Framsóknar, hefur verið áberandi í þjóðfélaginu síðustu vikur og vakið athygli fyrir líflegan og fallegan stíl. „Ég hef líklega vakið athygli fyrir klæðaburð minn upp á síðkastið af því að ég hef verið að draga fram föt sem ég notaði mikið hér áður fyrr,“ segir Sigrún og bætir við að fólki finnist fötin, sem hún hefur verið að draga upp úr kistunni á ný, mjög fín. Þingmönnum er skylt að vera í snyrtilegum klæðnaði þegar gengið er til þings í Alþingishúsinu en ætli Sigrún klæði sig öðruvísi á þingi heldur en í heima fyrir? „Vissulega klæði ég mig öðruvísi þar sem ég sit undir sjónvarpsmyndavélum allan daginn, það segir sig sjálft, segir Sigrún.Sigrún Magnúsdóttir umhverfis-og auðlindaráðherraLitagleðin hefur ávallt verið við völd yfir sumarmánuðina; ljósir og glaðir litir koma sterkir inn og gefa okkur von um sólríka daga. Sigrún hefur lagt mikið upp úr því að klæðast litríkum fötum og segist sjaldan klæðast svörtu. „Ég legg alltaf mikið upp úr því að vera í fallegum litum, ég þarf liti annars verð ég svo litlaus. Ég er alls ekki ein af þessum íslensku svörtu týpum, hér áður fyrr átti ég varla svarta flík,“ segir Sigrún létt í bragði.Flestar konur elska að ganga með fylgihluti. Oft er sagt að „less is more“ þegar kemur að skarti og fylgihlutum. Litríkir eyrnalokkar hafa heillað, en Sigrún hefur alla tíð verið einstaklega hrifin af fallegum eyrnalokkum. „Maðurinn minn hefur verið duglegur við að gefa mér fallega fylgihluti. Nú, svo ég ljóstri upp hérna einu, þá var ég alltaf með eyrnalokka hér áður fyrr. Maður var nú ekkert sérstaklega efnaður á þeim tíma, svo þetta voru alls ekki eyrnalokkar af neinum klassa. Ég fékk á mig í opinberri umræðu, að ég væri nú alls ekki smart með þessa plasteyrnalokka. Ég verð nú að viðurkenna að það var alls ekki skemmtilegt, svona getur maður verið viðkvæmur,“ segir Sigrún og brosir.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 16. apríl.
Mest lesið „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Lífið Ingunn Lára gengin út með Celebi Lífið Elt á röndum með drónum Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Lífið Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Lífið Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Lífið Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda Lífið Óhappamynd Alec Baldwin brátt frumsýnd Bíó og sjónvarp Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Lífið Fleiri fréttir Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Hlýlegt einbýli úr smiðju Rutar Kára Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Þraukuðu saman í tvo mánuði Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi „Herra kerran er til sölu“ Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Laufey og Júnía í fremstu röð í París Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F Flogið þangað sem enginn kemst nema í draumi „Stolt af mínum konum sem geisluðu af gleði“ Sjá meira