Menning

Dalakofinn og lagið um hana Unu

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonurnar Signý, Björk og Jóhanna með þá Gunnar og Bjarna Þór á bak við sig.
Söngkonurnar Signý, Björk og Jóhanna með þá Gunnar og Bjarna Þór á bak við sig. Mynd/Ragnheiður Kjartansdóttir
Söngkonurnar Björk Jónsdóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Signý Sæmundsdóttir, sem kalla sig 3Klassískar, koma fram á hádegis­tónleikum í Fríkirkjunni í dag, ásamt 2Prúðbúnum, þeim Bjarna Þór Jónatanssyni píanóleikara og Gunnari Hrafnssyni bassaleikara.

„Yfirskrift tónleikanna er Lífið er lambagras, það er vísun í eitt ljóðanna sem við flytjum. Það er eftir Þorvald Þorsteinsson og við syngjum það við lag Megasar,“ segir Jóhanna Þórhalls.

Hún segir það eina ljóð Þorvaldar á dagskránni en fleiri séu eftir Megas og Davíð Stefánsson.

„Við erum m.a. með nýja útsetningu á Dalakofanum og lagið um hana Unu sem heyrist ekki oft. Þá erum við líka með skemmtilega útsetningu af Táraborginni eftir Megas og svo auðvitað Sögu úr sveitinni.“

Söngkonurnar hafa sungið saman um árabil og komið fram víða um land. Jóhönnu eru minnisstæðir tónleikar í Bragganum á Hólmavík þar sem allt ætlaði um koll að keyra þegar þær mættu með Megasi í júlímánuði fyrir nokkrum árum.

Tónleikarnir í Fríkirkjunni tilheyra tónleikaröðinni Á ljúfum nótum. Þeir hefjast klukkan 12 og taka um hálfa klukkustund. Aðgangseyrir er 1.500 krónur og ekki er tekið við greiðslukortum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.