Viðskipti innlent

Þrír nýir kjörnir í stjórn Samtaka verslunar og þjónustu

Bjarki Ármannsson skrifar
Ný stjórn samtakanna.
Ný stjórn samtakanna. Mynd/SVÞ
Jón Björnsson frá Festi hf., Jón Ólafur Halldórsson frá Olís og Kjartan Örn Sigurðsson frá versluninni Kvosin ehf. voru kjörnir í stjórn Samtaka verslunar og þjónustu á aðalfundi samtakanna í dag.

Fyrir í stjórninni eru þau Árni Stefánsson hjá Húsasmiðjunni, Margrét G. Flóvenz frá KPMG og Ari Edwald frá MS auk Margrét Sanders frá Deloitte, formanni samtakanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×