Fótbolti

Björn Bergmann: Pabbi fékk örugglega kökk í hálsinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Björn Bergmann Sigurðarson hefur svarað fyrir sig í viðtölum í aðdraganda leiksins.
Björn Bergmann Sigurðarson hefur svarað fyrir sig í viðtölum í aðdraganda leiksins. vísir/ernir
Björn Bergmann Sigurðarson, 25 ára gamall Skagamaður, er í íslenska landsliðshópnum í fótbolta í fyrsta sinn í sex ár. Þessi kraftmikli framherji Molde í Noregi spilaði tvítugur sinn fyrsta landsleik fyrir fimm árum síðan.

Björn Bergmann spilaði sex mínútur í leiknum sem eru hans einu mínútur með landsliðinu til þessa. Vísir fjallaði um stuttan landsliðsferil Skagamannsins þegar hann var valinn í hópinn í síðustu viku og má lesa allt um hann hér.

Sjá einnig:Björn: Horfir aldrei á fótbolta en missti ekki af leik með landsliðinu

Framherjinn hefur viðurkennt að hann hefur engan áhuga á fótbolta og hafði engan áhuga á að spila fyrir landsliðið þessi ár sem hann gaf ekki kost á sér. Í aðdraganda leiksins gegn Finnum í kvöld hefur hann þurft að svara fyrir ákvörðun sína.

Björn Bergmann á æfingu með landsliðinu á Laugardalsvelli.vísir/vilhelm
Rétt ákvörðun

„Það hefur gengið bara mjög vel. Ég er búinn að vera hreinskilinn og segja hvernig hlutirnir voru. Þetta er bara þannig að ég vildi gera annað með tímann og hafði ekki áhuga á þessu,“ sagði Björn Bergmann í viðtali í Akraborginni á X977.

„Það er kannski skrítið fyrir fótboltamann að segja pass við landsliðið en nú er ég búinn að þroskast og sjá að ég eigi að vera í landsliðinu ef ég fæ tækifæri til.“

Aðspurður hvort hann sjái eftir því að hafa ekki gefið kost á sér sagði Björn Bergmann svo ekki vera.

„Nei, ekki þannig. Á þessum tíma fannst mér þetta vera rétt ákvörðun. Þetta var það sem ég vildi. Nú vil ég vera með. Eftir að ég talaði við Heimi um daginn finnst mér þetta svo sjálfsagt, sérstaklega því hann vill fá mig,“ sagði Björn, en ekki eru allir sáttir með framkomu hans gagnvart landsliðinu í gegnum tíðina, en þar sem hann fylgist ekkert með fótbolta hefur það mestmegnis farið framhjá honum.

„Ég skil þetta mjög vel. Ég fylgist ekkert með fótbolta og hef engan áhuga á honum. Mér finnst saman gaman að spila og gaman að æfa. Fyrir mörgum er þetta alveg fáránlegt, en svona er ég bara,“ sagði Björn.

Björn Bergmann Sigurðarson skýtur að marki í eina A-landsleiknum sínum.vísir/valli
Vil sanna mig

Íslenska landsliðið er í meiðslavandræðum. Kolbeinn Sigþórsson verður ekki með og Jón Daði Böðvarsson er meiddur. Telur Skagamaðurinn að hann fái tækifæri í leiknum í kvöld?

„Ég vona það. Ég skil mjög vel að ég sé ekkert að fara að byrja þessa leiki en maður veit aldrei. Þetta er í fyrsta skipti sem ég kem inn í þetta. Það eru frábærir strákar og leikmenn í liðinu þannig ef ég fæ einhverjar mínútur verð ég þvílíkt ánægður,“ sagði Björn sem ætlar nú framvegis að gefa kost á sér í liðið.

„Já, að sjálfsögðu. Ef ég fæ að spila einhverjar mínútur vonast ég til að geta sannað mig fyrir þjálfaranum að ég eigi skilið að vera í þessu liði. Þetta snýst um það.“

Björn Bergmann hefur ekki verið í landsliðshópnum í fimm ár. Fyrst um sinn því hann vildi það ekki og svo var hann einfaldlega ekki á radar landsliðsþjálfaranna. Eðlilega voru foreldrar framherjans því ánægðir þegar hann sagði þeim að hann myndi klæðast bláu treyjunni á ný.

„Þau eru rosalega ánægð. Þú hefðir átt að sjá svipinn á pabba þegar ég hringdi í hann á Facetime og sagði honum að Heimir hefði hringt og ég væri á leiðinni í landsliðið. Hann fékk örugglega kökk í hálsinn,“ sagði Björn Bergmann Sigurðarson.

Allt viðtalið við Björn Bergmann Sigurðarson í Akraborginni má heyra hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×