Minnst 11 látnir eftir þyrluslysið í Noregi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. apríl 2016 13:07 Yfirvöld segja að fundist hafi ellefu lík á slysstað í Noregi. Vísir/EPA
Ellefu eru látnir eftir að þyrla hrapaði undan vesturströnd Noregs fyrr í dag. Um borð voru ellefu starfsmenn norska orkufyrirtækisins Statoil en tveir voru í áhöfn þyrlunnar. Yfirvöld gera ráð fyrir að allir um borð hafi látist. Þyrlan, sem var af gerðinni Eurocopter EC-225 Super Puma, hrapaði í grennd við eyjuna Turøy um klukkan tíu að íslenskum tíma. Talið er að þyrluspaðar þyrlunnar hafi fallið af áður en þyrlan skall niður til jarðar. Mikil sprenging varð þegar þyrlan skall til jarðar á hólma á eyjunni Turøy, skammt frá Bergen. Mikil björgunaraðgerð hófst og var mikill viðbúnaður við eyjuna. Fyrstu fregnir hermdu að einhverjir væru í sjónum eftir að þyrlan hrapaði en lögregla staðfesti fljótlega að enginn þeirra sem var um borð í vélinni hafi fundist á lífi. Nú hefur verið staðfest að ellefu af þeim þrettán sem voru um borð hafi látist. Að sögn lögreglu fundust líkin bæði í sjó og á landi. Þyrluspaðar vélarinnar fundist á hólminum við eyjuna en skrokkurinn sjálfur liggur á 7,6 metra dýpi í sjónum. Eru kafarar að störfum á slysstað. Ellefu Norðmenn voru um borð, einn Ítali og einn Breti Þyrlan var á leið frá olíuborpallinum Gullfaks B á Gullfaks-vinnslusvæðinu í Norðursjó. Átti hún örskammt eftir af ferð sinni til Bergen. Hér að neðan má sjá beina útsendingu Verdens Gang.
Mest lesið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Tíu ára drengur sagður látinn eftir bílslys á Ítalíu Erlent Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Innlent Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Innlent Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Innlent Hætta leitinni í Meradölum Innlent Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent „Svarta ekkjan“ fannst látin Erlent Barn meðal látinna í rútuslysi Erlent Fleiri fréttir „Svarta ekkjan“ fannst látin Tíu ára drengur sagður látinn eftir bílslys á Ítalíu Barn meðal látinna í rútuslysi Þýska sambandsþingið leyst upp Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands látinn Ákæra líka starfandi forseta til embættismissis Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu fjórtán ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Sjá meira