Formúla 1

Rosberg: Einn af mínum bestu hringjum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Þrír hröðustu menn dagsins. Ricciardo, Rosberg og Hamilton.
Þrír hröðustu menn dagsins. Ricciardo, Rosberg og Hamilton. Vísir/Getty
Nico Rosberg náði í sinn sjöunda ráspól á tímabilinu á Marina Bay brautinni í dag. Hann var ósnertanlegur á nýju brautarmeti. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

„Ég er afar ánægður með þennan hring. Hann er einn af mínum bestu hringjum á ferlinum. Ég hef ekki áhyggjur af Red Bull en við munum hafa augu á þeim,“ sagði alsæll Nico Rosberg eftir tímatökuna þar sem hann var í sérflokki.

„Ég var nokkuð ánægður með minn hring. Við vildum ná að vera á fremstu ráslínu. Okkur tókst að koamst í þriðju lotu á ofurmjúku dekkjunum sem setur okkur í góða stöðu á morgun,“ sagði Daniel Ricciardo sem varð annar á Red Bull.

„Ég náði engum góðum hringjum, helgin hefur verið erfið. Nico stóð sig einkar vel í dag,“ sagði Lewis Hamilton sem varð þriðji í dag á Mercedes bílnum.

„Ég er ekki ánægður með þetta. Jafnvægið í bílnum var ekki eins og það á að vera. Staðan er þó ekki svo slæm,“ sagði Max Verstappen sem varð fjórði á Red Bull bílnum.

„Ég vissi að ég yrði að taka meiri áhættur í lok tíamtökunnar en það tókst ekki. Bíllinn er góður. Vonandi verður morgundagurinn betri. Yfirleitt er mikið um uppákomur og við getum verið heppnir með öryggisbílinn sem er afar líklegur til að koma út,“ sagði Kimi Raikkonen sem varð fimmti á Ferrari.

„Ég var að lyfta fætinum mikið af inngjöfinni. Ætli ég hafi ekki tapað um sex tíundu úr sekúndu á hringnum. Ég er viss um að ég hægði nóg á mér undir gulu flöggunum. Við höfum verið að glíma við mörg vandamál hingað til hér í Singapúr. Svo ég er nokkuð sáttur með að komast í þriðju lotuna,“ sagði Sergio Perez sem varð tíundi á Force India bílnum.

Perez tók þó fram úr undir gulum flöggum. Slíkt gæti leitt til þess að Perez verði refsað. Williams liðið kvartaði yfir þessu við dómara keppninnar.

„Ég er ánægður með þetta. Bíllinn var góður. Það eru alltaf einhverjir staðir sem maður getur tekið meiri áhættur en ég náði góðum hring. Það er gaman að sjá bílinn koma til baka. Hann hefur ekki verið samur sjálfum sér undanfarið,“ sagði Daniil Kvyat sem varð sjöundi á Toro Rosso. Kvyat virðist aðeins kominn aftur á réttan kjöl. Hann hefur átt erfitt með að fóta sig í Formúlu 1 undanfarið, eftir að hann var færður frá Red Bull til Toro Rosso.


Tengdar fréttir

Nico Rosberg á ráspól | Vettel aftastur

Nico Rosberg á Mercedes mun ræsa fremstur í Singapúr kappastrinum á morgun. Daniel Ricciardo á Red Bull varð annar og Lewis Hamilton á Mercedes þriðji.

Mercedes vonast eftir betri keppni í Singapúr

Mercedes liðið í Formúlu 1 telur sig hafa fundið útskýringu slakrar frammistöðu í Singapúr á síðasta ári. Þá voru báðir ökumenn liðsins rúmri sekúndu frá ráspól í tímatöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×