Blandað lið Íslands í unglingaflokki vann til bronsverðlauna á EM í hópfimleikum sem fer fram í slóvensku borginni Maribor.
Íslensku krakkarnir fengu 21,783 fyrir gólfæfingar og fóru þar með upp úr neðsta sætinu í það þriðja.
Danir tóku fyrsta sætið og Norðmenn urðu í 2. sæti, aðeins 0,150 á eftir danska liðinu.
Íslenska liðið byrjaði á dýnu og tókust þær æfingar býsna vel. Ísland fékk 17,100 í einkunn fyrir dýnustökkin.
Æfingar á trampólíni gengu öllu verr og slæmar lendingar urðu til þess að Ísland fékk aðeins 15,500 í einkunn. Til samanburðar fékk íslenska liðið 17,000 í einkunn fyrir trampólínstökkin í undankeppninni.
En frábærar gólfæfingar þurrkuðu mistökin á trampólíninu út og mikill fögnuður braust út hjá íslenska liðinu og Íslendingunum í stúkunni þegar einkuninn fyrir gólfæfingarnar var lesin upp.
Ísland fékk 54,383 í heildareinkuninn en einkuninn fyrir gólfæfingarnar var sú hæsta sem var gefin hjá blönduðu liðunum í unglingaflokki.
Keppni hjá stúlknaliðunum hefst klukkan 15:15. Fylgjast má með henni í beinni útsendingu með því að smella hér.

