Viðskipti innlent

Háskólanemar stofna leigumiðlun fyrir erlenda stúdenta

ingvar haraldsson skrifar
Stofnendur Rentmate, Eyþór Logi Þorsteinsson, Jóhann Ívar Björnsson, Sigurður Davíð Stefánsson og Óli Pétur Friðþjófsson.
Stofnendur Rentmate, Eyþór Logi Þorsteinsson, Jóhann Ívar Björnsson, Sigurður Davíð Stefánsson og Óli Pétur Friðþjófsson. vísir/stefán
Fjórir nemendur við Háskólann í Reykjavík hafa stofnað fyrirtækið Rentmate sem á að aðstoða erlenda námsmenn við að finna húsnæði hér á landi. „Planið er að taka inn hundrað stúdenta í haust sem við erum á góðri leið með að ná,“ segir Eyþór Logi Þorsteinsson, hinn tvítugi framkvæmdastjóri Rentmate.

Eyþór segir þá sjá mikil tækifæri fyrir gistiheimili, sem geti bætt nýtingu sína yfir vetrartímann, þegar færri ferðamenn séu á landinu en losni svo í útleigu til ferðamanna yfir sumartímann. Þá sé talsverð þörf fyrir aðila sem aðstoði erlenda námsmenn við að finna sér húsnæði. „Allar alþjóðaskrifstofur sem við höfum talað við hafa tekið okkur fagnandi, þetta er oft mikill hausverkur fyrir þær,“ segir hann. „Það er erfitt fyrir nemendurna að para sig saman í íbúð því það er enginn vettvangur fyrir þá til þess,“ bætir hann við. Hann segir von á um 1.200 erlendum stúdentum til landsins í haust í háskólana þrjá í Reykjavík.

Þeir hafi sett sér það markmið að finna húsnæði fyrir hundrað nemendur næsta haust. „Við erum á góðri leið með það.“ Eigendur íbúða, t.d. á Airbnb, og gistiheimila hafi tekið þeim vel. Erlendu nemendurnir og eigendur gistirýma munu geta skráð sig inn á heimasíðu Rentmate þar sem hægt verður að auglýsa herbergi eða rúm og leigja þau út.

Hann segir þá hafa hafið starfsemi um miðjan mars. „Hlutirnir eru búnir að gerast frekar hratt síðan þá.“ Þeir séu langt komnir með að hanna heimasíðu fyrir félagið þar sem erlendu nemendurnir og eigendur gistirýma munu geta leigt út herbergi eða rúm sem gistiheimili eða íbúðaeigendur muni geta auglýst á síðunni.

Eyþór segir Rentmate hafi fengið 475 þúsund króna frumkvöðlastyrk frá JAeurope og Norðurlandaráði, en að öðru leyti hafi þeir fjármagnað verkefnið sjálfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×