Nico Hulkenberg fer til Renault Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 14. október 2016 15:15 Nico Hulkenberg hættir færir sig frá Force India til Renault eftir tímabilið. Vísir/Getty
Formúlu 1 lið Renault hefur staðfest að Nico Hulkenberg hafi samið við liðið. Hulkenberg er sem stendur samningsbundinn Force India. Hulkenberg var á samningi hjá Force India út næsta tímabil, en liðið valdi að standa ekki í vegi fyrir brottför hans ef hann vildi fara annað. Þýski ökuþórinn segist spenntur að hjálpa Renault að „skrifa nýja sögu um góðan árangur“ en liðið stefnir á að geta unnið keppnir og keppt um heimsmeistaratitla inna fjögurra til fimm ára. „Ég er mjög ánægður með að fara til Renault. Renault hefur alltaf verið stór þátttakandi í akstursíþróttaheiminum. Liðið vekur upp ótrúlegar minningar. Á tíma sínum hjá liðinu tókst Michael Schumacher ekki einungis að gera Þjóðverja að F1 þjóð heldur einnig að vekja áhuga minn á kappakstri,“ sagði Hulkenberg. „Ég mun gefa allt sem ég á til að aðstoða Force India í að ná í fjórða sæti í keppni bílasmiða í þeim fjórum keppnum sem eru eftir á tíambilinu. Það yrði mikið afrek fyrir Force India og besti árangur þess frá upphafi og frábær lokakafli ánægjulegrar dvalar minnar hér,“ bætti Hulkenberg við. Enn er óstaðfest hver verður liðsfélagi Hulkenberg. Núverandi ökumenn liðsins, Kevin Magnussen og Jolyon Palmer koma helst til greina ásamt Manor ökumanninum Esteban Ocon. „Til að taka næsta skref í þróun liðsins þurftum við reynslumikinn ökumann sem enn þyrstir í verðlaunasæti. Nico Hulkenberg passar fullkomlega í þetta hlutverk. Hann er afar hæfileikaríkur og viljugur ökumaður. Hann mun taka næsta skref með okkur,“ sagði Jerome Stoll, framkvæmdastjóri kappakstursdeilda Renault.Hér að neðan má sjá yfirlit yfir feril Hulkenberg í Formúlu 1.
Formúla Tengdar fréttir Hamilton: Ég mun gefa allt sem ég á í þær keppnir sem eru eftir Nico Rosberg kom fyrstur í mark í Japan. Lewis Hamilton klúðraði enn einni ræsingunni og þurfti að hafa töluvert fyrir því að ná í sitt hundraðasta verðlaunasæti í Formúlu 1. Hver sagði hvað eftir keppnina? 9. október 2016 11:00 Bílskúrinn: Spenna á Suzuka Nico Rosberg tók risastórt skref í átt á sínum fyrsta heimsmeistaratitili í japanska kappakstrinum um liðna helgi. Lið Rosberg, Mercedes tryggði sér um leið þriðja heimsmeistaratitil sinn í röð. 13. október 2016 11:30 Er Hamilton að kasta frá sér titilbaráttunni? | Sjáðu uppgjörsþáttinn Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark og Mercedes tryggði sér heimsmeistaratitil bílasmiða. Rúnar Jónsson og Kristján Einar Kristjánsson, sérfræðingar Stöðvar 2 fara yfir allt það helsta frá japanska kappakstrinum í dag. 9. október 2016 14:00 Mest lesið England: Hver er kominn, að koma, farinn og að fara? Enski boltinn Víkingar á leið til Albaníu Fótbolti „Verður að dæmast af því hvernig við högum okkur í Evrópu í ár“ Fótbolti Enn ein stjarnan slítur krossband í hné Fótbolti Grátlegt tap niðurstaðan og barátta um sæti í A-deild framundan Körfubolti Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Hin reynda Dinkins í raðir Njarðvíkur Körfubolti Stefán Ingi á leið til Noregs Fótbolti Guðmundur Bragi til Danmerkur Handbolti Jón Axel fer í nýtt félag á Spáni Körfubolti Fleiri fréttir Ralf Schumacher kemur út úr skápnum Hélt að hann myndi aldrei vinna aftur: „Ég get ekki hætt að gráta“ Hamilton fyrstur í fyrsta sinn í langan tíma Semja við Bellingham Formúlu 1 heimsins McLaren vill að Verstappen verði refsað: Allur heimurinn veit hver er sá seki Russell fagnaði sigri eftir árekstur Verstappen og Norris Þjarmað að Verstappen á blaðamannafundi Biðlar til „klikkaðra samsæriskenningasmiða“ að leita til sálfræðings Verstappen vann sjöunda kappaksturinn á tímabilinu Lando Norris á ráspól á morgun Höfðu hendur í hári fjárkúgara Michael Schumacher Verstappen sigraði í Kanada Russell á ráspól á sama tíma og Verstappen Miklar breytingar framundan á bílum í Formúlu 1 Perez framlengir og framtíð Sainz enn í lausu lofti Alpine framlengir ekki við Ocon eftir áreksturinn í Mónakó Sjá meira
Hamilton: Ég mun gefa allt sem ég á í þær keppnir sem eru eftir Nico Rosberg kom fyrstur í mark í Japan. Lewis Hamilton klúðraði enn einni ræsingunni og þurfti að hafa töluvert fyrir því að ná í sitt hundraðasta verðlaunasæti í Formúlu 1. Hver sagði hvað eftir keppnina? 9. október 2016 11:00
Bílskúrinn: Spenna á Suzuka Nico Rosberg tók risastórt skref í átt á sínum fyrsta heimsmeistaratitili í japanska kappakstrinum um liðna helgi. Lið Rosberg, Mercedes tryggði sér um leið þriðja heimsmeistaratitil sinn í röð. 13. október 2016 11:30
Er Hamilton að kasta frá sér titilbaráttunni? | Sjáðu uppgjörsþáttinn Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark og Mercedes tryggði sér heimsmeistaratitil bílasmiða. Rúnar Jónsson og Kristján Einar Kristjánsson, sérfræðingar Stöðvar 2 fara yfir allt það helsta frá japanska kappakstrinum í dag. 9. október 2016 14:00