Viðskipti innlent

Gæti skapað allt að 90 ný störf

Sæunn Gísladóttir skrifar
Laxeldið myndi líklega hefjast í Ísafjarðardjúpi árið 2018.
Laxeldið myndi líklega hefjast í Ísafjarðardjúpi árið 2018. vísir/pjetur
„Við höfum í hyggju að rækta 20 þúsund tonn af laxi í Ísafjarðardjúpi. Við gerum ráð fyrir að þegar allt verður komið í botn hjá okkur verðum við með 60 til 90 manns í vinnu hjá okkur beint við eldið. Svo á eftir að telja afleidd störf,“ segir Þorsteinn Másson, útibússtjóri Arnarlax í Bolungarvík.

Laxeldisfyrirtækið Arnarlax opnaði nýverið skrifstofu í Bolungarvík. Fyrirtækið er í eigu norskra og íslenskra fyrirtækja og hefur á síðustu árum byggt upp laxeldi í Arnarfirði. Í vetur var svo sett upp tæknivætt laxasláturhús á Bíldudal. Arnarlax mun framleiða rúmlega sjö þúsund tonn á þessu ári og tíu þúsund tonn á því næsta.

Þorsteinn Másson, útibússtjóri Arnarlax í Bolungarvík.
„Við vonum að geta hafið starfsemi í Ísafjarðardjúpi í kringum 2018. Við erum að vinna í leyfismálunum núna. Leyfin eru háð mjög ströngum skilyrðum því það eru margar stofnanir sem koma að leyfisveitingu áður en starfsemi getur hafist,“ segir hann. 

Þorsteinn á von á að Íslendingar geti mannað mörg af þessum 90 störfum sem verða til. 

„Við horfum mikið til reynslunnar á Bíldudal, það er mjög gaman að segja frá því að þar var mikið af fyrrverandi Bílddælingum sem komu til baka, því eldið kallar eftir alls konar fólki með alls konar reynslu og menntun. Hlutfall menntaðs starfsfólks er hærra en marga grunar.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×