Svala Björgvins fékk sér tvö ný tattú Guðný Hrönn skrifar 9. desember 2016 13:00 Uglan hennar Svölu.
Tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir er forfallin áhugakona um húðflúr og skartar nokkrum flúrum sjálf. Nýverið fékk hún sér tvö ný tattú á handleggina sem eru innblásin af kvikmyndinni Blade Runner, uglu og origami-einhyrning. „Blade Runner er ein af mínum uppáhaldsbíómyndum. Hún hefur veitt mér innblástur í gegnum árin, í minni tónlist, fatahönnun og allri sköpun. Ég fékk mér ugluna sem var í myndinni en hún var eins konar eftirmynd af alvöru uglu. Í myndinni eru nefnilega flestöll dýr útdauð og uglan í Blade Runner er véldýr sem lítur nákvæmlega út eins og alvöru ugla. Svo fékk ég mér origami-einhyrninginn sem er mjög táknrænn í bíómyndinni.“Origami-einhyrningurinn fékk samastað á upphandleggnum.Ugluna fékk Svala sér á framhandlegginn en einhyrninginn fékk hún á innanverðan upphandlegg og er himinlifandi með útkomuna. „Það var hann Haukur Færseth hjá Memoria Collective sem hannaði tattúin og flúraði þau bæði. Hann hefur gert þrjú flúr á mig en þetta er í annað sinn sem ég fer á Memoria Collective. Í minni fyrstu heimsókn þangað fékk ég mér rosalega fallegan örn í „traditional“-stíl á upphandlegg. Ég var svo svakalega ánægð með hann þannig að ég ákvað að leita aftur til Memoria Collective með þessi tvö nýju flúr.“ Svala segir andrúmsloftið á þeirri húðflúrstofu vera vinalegt og það skipti hana máli. „Svo eru þeir líka afar hæfileikaríkir listamenn og fagmannlegir. Ég mæli eindregið með þeim.“Fyrsta tattúið sem Svala fékk sér á húðflúrstofunni Memoria Collective.Ávanabindandi áhugamál Svala kveðst vera rétt að byrja. „Já, ég á eftir að fá mér mun fleiri húðflúr. Ég er alls ekki hætt. Ég er með „full sleeve“-tattú á hægri handlegg sem nær frá öxl niður á úlnlið og það er japanskt verk eftir vinkonu mína, Sofiu. Svo er ég með „sugarskull“, dreka og rosalega stóran svartan pardus á mjóbakinu til viðbótar við þau flúr sem ég fékk á Memoria Collective. Þetta eru sjö tattú allt í allt en í „full sleeve“-tattúinu eru auðvitað mörg verk sem sameinast í eitt,“ útskýrir Svala sem segir húðflúr vera ávanabindandi. „Þegar maður byrjar þá verður þetta svolítið ávanabindandi. Svo eru líka svo margir æðislega hæfileikaríkir húðflúrlistamenn sem mann langar að vinna með og fá listaverk eftir. Alveg óendanlega mikið af verkum sem mann langar í.“
Húðflúr Mest lesið Jon Landau er látinn Bíó og sjónvarp Rauðhærðir í brennidepli á vel sóttum írskum dögum Lífið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Eins söguleg og skáldsaga getur orðið Lífið Laufey í banastuði í Reykjavík Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Emmsjé Gauti laumaði sér á Landsmót fyrir tónlistarmyndband Lífið Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Alltaf sótt í orku og gleði í klæðaburði Tíska og hönnun „Þú gleymir fólki sem þú hefur elskað allt þitt líf“ Lífið Fleiri fréttir Alltaf sótt í orku og gleði í klæðaburði Vann til margra verðlauna fyrir stól sem slær í gegn „Með 40 prósent af óþarfa með mér og virðist ekki læra af því“ „Ekki fylgja hverju einasta tískutrendi“ Enn að ná sér niður eftir að hafa hitt Miuccia Prada Leyfir bumbunni að njóta sín á meðgöngunni Sjóðheit trend beint af tískupallinum í París Skvísuviðburður þar sem hátískuflíkum rigndi yfir gesti Þotulið listagyðja fögnuðu að sænskum stíl „Ef ég væri ekki prestur væri gaman að vera poppstjarna“ „Mér þykir alltaf vænt um hlutina mína“ Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti Ofurskvísur landsins fögnuðu „Heiðarlegri“ fatalínu Heiðar Klæðir sig oft óbeint í stíl við dóttur sína „Tilfinningaþrungið að fá að fylgja myndinni í flík sem þessari“ Sjá meira