Útlendingastofnun hefur tekið Víðines á Kjalarnesi á leigu af Reykjavíkurborg til þess að geta unnið bug á veggjalús, sem herjar á hælisleitendur, í gistiskýlinu við Bæjarhraun í Hafnarfirði. Borgarráð Reykjavíkurborgar samþykkti ósk Útlendingastofnunar á fundi á fimmtudag.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins samþykktu tillöguna en bókuðu jafnframt að um tímabundna neyðarráðstöfun væri að ræða. Einnig minntu þeir á tillögu sem þeir fluttu í fyrrasumar um að Víðines verði nýtt til þess að taka á móti heimilislausu fólki og hýsa það.
„Gistiskýlin í borginni eru öll orðin yfirfull, en þessi samningur er aðeins tímabundinn til tveggja til þriggja mánaða, svo hægt sé að leysa úr þessum veggjalúsarvandamálum í Hafnarfirði,“ segir Sveinbjörg Birna, en hún hefur lagt til að ákvörðun um nýtingu hússins verði tekin með aðkomu velferðarsviðs annars vegar og skóla- og frístundasviðs hins vegar.
„Húsnæðið er í úttekt og þarf að fá tilskilin leyfi og uppfylla ákveðin skilyrði til þess að okkur sé heimilt að fara þangað inn með fólk,“ segir Þórhildur Ósk Hagalín, upplýsingafulltrúi Útlendingastofnunar. Rýma þarf gistiskýlið við Bæjarhraun og það gæti tekið nokkra daga að vinna bug á veggjalúsinni segir Þórhildur en um 75 manns búa í skýlinu eins og er. Veggjalúsin hefur leikið lausum hala innan Bæjarhraunsins síðan á mánudag og að minnsta kosti ein fjölskylda hefur þurft að flýja gistiskýlið vegna bits, samkvæmt frétt Ríkisútvarpsins.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu