Innlent

Tvö hús friðlýst

Svavar Hávarðsson skrifar
Skólahúsið er byggt á árunum 1929-30.
Skólahúsið er byggt á árunum 1929-30. vísir/valli
Handverks- og hússtjórnarskólinn á Hallormsstað og sumarhúsið Ísólfsskáli á Stokkseyri hafa verið friðlýst að tillögu Minjastofnunar Íslands. Húsin eru friðuð með ákvörðun Sigurðar Inga Jóhannssonar forsætisráðherra með vísan til laga um menningarminjar.

Friðlýsing Handverks- og hússtjórnarskólans nær til ytra borðs skólahússins ásamt upprunalegum innréttingum í vefstofu, skrifstofu skólastjóra, anddyri og svokallaðri Höll, sem er samkomustaður í miðju hússins. Undanþegnar friðlýsingu eru seinni tíma viðbyggingar og múrklæðning á útveggjum.

Friðlýsing Ísólfsskála, sem byggður var fyrir Pál Ísólfsson dómorganista, tekur til hússins í heild ásamt steinhlöðnum görðum á lóðamörkum.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×