Fótbolti

Frönsku meistararnir klaufar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mark Lucas Moura dugði PSG ekki til sigurs.
Mark Lucas Moura dugði PSG ekki til sigurs. vísir/getty
Paris Saint-Germain varð af tveimur stigum í toppbaráttu frönsku úrvalsdeildarinnar þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Saint-Étienne á heimavelli í kvöld.

PSG, sem hefur orðið franskur meistari undanfarin fjögur ár, fer nokkuð rólega af stað á tímabilinu en liðið er í 3. sæti deildarinnar með sjö stig eftir fjóra leiki.

Frönsku meistararnir gráta eflaust þessi tvö stig sem töpuðust í kvöld en þeir fengu á sig jöfnunarmark í uppbótartíma.

PSG var sterkari aðilinn í leiknum og Brasilíumaðurinn Lucas Moura kom liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu á 67. mínútu.

Meistararnir náðu þó ekki að skora annað mark og þeim hefndist fyrir það þegar varamaðurinn Robert Beric jafnaði metin á 91. mínútu og tryggði gestunum stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×