Innlent

Eiðurinn sýndur í efstu bekkjum grunnskóla

Atli Ísleifsson skrifar
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, og leikstjórinn Baltasar Kormákur.
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, og leikstjórinn Baltasar Kormákur. Mynd/mennta- og menningarmálaráðuneytið
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, og leikstjórinn Baltasar Kormákur undirrituðu styrktarsamning fyrir helgi sem ætlað er að mæta kostnaði við sýningar og kynningu á tilurð kvikmyndarinnar Eiðurinn fyrir nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla um land allt.

Frá þessu segir í frétt mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

„Kvikmyndin Eiðurinn segir af reykvískum lækni sem tekur afdrífaríkar ákvarðanir þegar hann áttar sig á því að dóttir hans er komin í neyslu hættulegra vímuefna og í samband með hættulegum dópsala. 

Myndin var frumsýnd 9. september síðastliðinn og hefur vakið mikla athygli. Baltasar Kormákur leikstýrði myndinni og skrifaði handritið ásamt Ólafi Egilssyni.

Með samningnum verður grunnskólum um land allt kost á að sækja sýningu á myndinni og umræðum um efni hennar í forvarnaskyni gegn vímuefnaneyslu ungs fólks. Aðstandendur kvikmyndarinnar koma til með að bjóða fram krafta sína til kynningar á baksviði hennar og heimsækja grunnskóla um land allt, samkvæmt skipulagi við skóla,“ segir í fréttinni.


Tengdar fréttir

Eiðurinn tekjuhæsta mynd ársins

Kvikmynd Baltasars Kormáks Eiðurinn sem frumsýnd fyrir mánuði síðan er orðinn tekjuhæst allra kvikmynda sem sýndar hafa verið árið 2016.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×