Innlent

Árlegur jólabasar fyrir ketti haldinn í dag

Hinn árlegi jólabasar Kattavinafélags Íslands var haldinn í Kattholti í dag. Þar var ýmis konar fallegur jólavarningur á boðstólum, dagatöl, kerti, handverk og jólaskraut -  flest allt með einhvers konar katta-þema, til styrktar starfinu sem unnið er í Kattholti.

Að sjálfsögðu voru svo jólakettir á svæðinu, sem hægt var að knúsa og klappa. Fréttastofan leit við í dag, líkt og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×