Þetta sætir tíðindum. Ljóðið ratar til sinna, er stundum sagt, af mikilli hógværð en þá er vísað til þess að þau séu ekki engin sérstök markaðsvara. Hins vegar brá svo við að fyrsta prentun bókar Sigurðar seldist upp og var bók hans endurprentuð í enn stærra viðbótarupplag en dæmi eru um þegar ljóðabækur eiga í hlut. Nú er önnur prentun að klárast og verið að undirbúa þriðju prentun.
„Á bókamessunni í Hörpunni varð atgangur í öskjunni þegar Sigurður áritaði bókina fyrir kaupendur báða daga messunnar og má segja að röð hafi verið útúr dyrum Hörpunnar þegar Sigurður sat við og áritaði. Birgðirnar hurfu eins og dögg fyrir sólu og þurfti í tvígang á neyðarsendingum á bókum að halda, slík var eftirspurnin,“ segir Egill Örn.

Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi Forlagsins er ánægður:
„Fátt getur glatt mig meira en einstæðar móttökur við ljóðabók Sigurðar Pálssonar. Leið okkar í útgáfunni hefur legið saman frá og með hans annarri bók og samstarfið alltaf verið einstaklega ánægjulegt enda leitun að betri manni og skáldi en Sigurði. Hann er einstakur öðlingsdrengur.“