Erlent

Par sprengdi sig í loft upp í Ankara

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Lögregla rannsakar bílinn.
Lögregla rannsakar bílinn. vísir/afp
Karl og kona sprengdu sig í loft upp skammt frá  Ankara, höfuðborg Tyrklands í nótt, þegar lögregla hugðist handtaka þau vegna gruns um að þau væru að skipuleggja sprengjuárás. Enga aðra sakaði í árásinni.

Lögreglu hafði borist ábending um að fólkið væri að undirbúa bílsprengjuárás í borginni. Ábendingin reyndist á rökum reist því þegar lögregla nálgaðist sprengdi fólkið bílsprengjuna með þeim afleiðingum að þau létust bæði. 

Ríkisstjóri Ankara, Erkan Topaca, segir að flest bendi til þess að fólkið hafi tengsl við kúrdíska verkamannaflokkinn, PKK.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×