Enski boltinn

Tímabilið líklega búið hjá Paddy

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Paddy McNair í leik með Sunderland í vetur.
Paddy McNair í leik með Sunderland í vetur. vísir/getty
Sunderland varð fyrir áfalli í dag er í ljós kom að varnarmaðurinn Paddy McNair spilar væntanlega ekki meira í vetur.

McNair meiddist í leik Sunderland og Hull City um síðustu helgi Hann er með sködduð liðbönd í hné.

Ekki liggur fyrir hversu lengi Paddy verður frá en ef hann spilar aftur í vetir þá verður það ekki fyrr en í lokaumferðum deildarinnar.

Þessi 21 árs gamli strákur kom til Sunderland frá Man. Utd í ágúst síðastliðnum. Hann var búinn að spila 12 leiki fyrir liðið í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×