Lífið

Adele lætur gagnrýnenda heyra það: „Gaur, sjúgðu á mér...“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Adele á tónleikum í Barcelona.
Adele á tónleikum í Barcelona. vísir/getty
Adele talar yfir tæpitungulaust og á því varð engin undantekningum á tónleikum nýverið þar sem hún svaraði gagnrýni pródúsentsins Tony Visconti.

Visconti, sem best er þekktur fyrir vinnu sína með David Bowie, lét hafta eftir sér í viðtali fyrir skömmu að líklegt væri að átt væri við rödd Adele við upptökur.

Adele var ekki sátt við það og hraunaði yfir hann.

„Eitthvað fífl sagði um daginn að röddin mín væri ekki sú rödd sem heyrðist á plötunum mínum,“ sagði Adele frekar pirruð við áhorfendaskarann. „Dude, suck my dick,“ voru næst orð hennar, áður en hún hélt áfram tónleikunum.

Atvikið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×