Enski boltinn

Villa slapp með skrekkinn gegn Leeds

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jonathan Kodija jafnar metin úr vítaspyrnu.
Jonathan Kodija jafnar metin úr vítaspyrnu. vísir/getty
Jonathan Kodjia bjargaði stigi fyrir Aston Villa þegar liðið mætti Leeds United í ensku B-deildinni í kvöld. Lokatölur 1-1.

Pontus Jansson kom Leeds yfir á 54. mínútu en Kodija jafnaði metin úr vítaspyrnu fjórum mínútum fyrir leikslok.

Skömmu síðar var Hadi Sacko hársbreidd frá því að tryggja Leeds stigin þrjú en skot hans úr góðu færi fór í slána á marki Villa.

Leeds, sem var búið að vinna þrjá leiki í röð fyrir leikinn í kvöld, er í 4. sæti deildarinnar en Villa í því níunda.

Í hinum leik kvöldsins vann Burton Albion 1-2 útisigur á Rotherham United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×