Lífið

Sjáðu hvernig Stevie úr Malcolm in the Middle lítur út í dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frábærir þættir.
Frábærir þættir. vísir
Þættirnir Malcolm in the Middle nutu gríðarlegrar vinsælda á sínum tíma og voru þeir í loftinu á árunum 2000-2006 en þeir fjölluðu um mjög svo sérstaka fjölskyldu í Bandaríkjunum.

Aðalpersónan var hinn klári Malcolm. Aðalleikararnir hafa allir verið að bralla eitthvað skemmtilegt eftir að þættirnir hættu og má þar aðallega nefna stórleikarann Bryan Cranston, sem lék faðir, Malcolm en hann sló rækilega í gegn í þáttunum Breaking Bad.

Einn karakter í þáttunum var nokkuð fyrirferðamikill og kom nánast fyrir í hverjum einasta þætti, það var Stevie, besti vinur Malcolm en hann var leikinn af Craig Taylor. Í dag er hann enn að reyna fyrir sér í leiklistinni en einbeitir sér aðallega að því að vera húðflúrari.

Hér að neðan má sjá hvernig hann lítur út í dag. Hann hefur breyst töluvert.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×