Innlent

Slys á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm
Bílslys varð á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar á fimmta tímanum í dag. Þar lentu þrír bílar í árekstri, en kalla þurfti til Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins til að hreinsa olíu af slysstaðnum. Einn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.

Loka þurfti tveimur akbrautum Miklubrautar yfir gatnamótin og olli það þó nokkrum töfum á umferðinni í leið vestur. Lögreglan hefur lokið störfum á vettvangi og er búið að opna fyrir umferð að fullu aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×