Fótbolti

Wolfsburg staðfestir komu Söru

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir. vísir/stefán
Sara Björk Gunnarsdóttir er á förum til þýska stórliðsins Wolfsburg en félagið staðfestir það á heimasíðu sinni í dag.

Samningur Söru Bjarkar við þýska félagið er til tveggja ára.

Hún kemur til Wolfsburg frá sænska félaginu Rosengård þar sem Sara hefur leikið undanfarin fimm ár.

„Þrátt fyrir ungan aldur er Sara mjög reynslumikil eftir að hafa leikið bæði í Meistaradeildinni og á stórmótum með íslenska landsliðinu. Hún er hvalreki fyrir okkar félag,“ segir Ralf Kellerman, þjálfari liðsins.

Sara Björk er 25 ára gömul og verður áhugavert að fylgjast með henni í þýska boltanum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×