Tala látinna kominn yfir 50 í Tyrklandi Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 21. ágúst 2016 14:01 Mikil sorg ríkir í suður hluta Tyrklands í dag. Vísir/Getty
Að minnsta kosti fimmtíu eru látnir og hundrað særðir eftir sprengjuárás í brúðkaupsveislu í bænum Gaziantep í suðurhluta Tyrklands í gærkvöld. Yfirvöld í Tyrklandi segja ISIS samtökin á bak við árásina. Gaziantep er rúmum 60 kílómetrum frá sýrlensku landamærunum en sprengingin varð í fjölmennri brúðkaupsveislu í suðurhluta borgarinnar.Sjálfsmorðsárás óstaðfest ennNokkrir tyrkneskir fjölmiðlar hafa greint frá því að um sjálfsmorðsárás hafi verið að ræða, en yfirvöld í landinu hafa ekki staðfest það. Enginn hefur lýst árásinni á hendur sér en Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sendi frá sér yfirlýsingu í nótt þar sem hann segir að líklegt sé vígamenn samtakanna sem kenna sig við íslamskt ríki hafi staðið að baki árásinni. Þá tók hann sérstaklega fram í raun væri enginn munur á samtökunum - og stuðningsmönnum klerksins Fethullah Gulen, sem hann sakar um að hafa staðið að valdaráðstilrauninni sem gerð var í síðasta mánuði. ISIS samtökin hafa bækistöðvar nálægt landamærum Sýrlands og Tyrklands en sýrlenskar uppreisnarsveitir hafa sótt hart að þeim undanfarið. Er talið að árásin í nótt hafi verið í hefndarskyni fyrir það.Sprengjuárásir tíðarSprengjuárásir hafa verið tíðar í suðurhluta Tyrklands síðasta árið og hafa ýmist hryðjuverkasamtökin ISIS eða uppreisnarsveitir Kúrda lýst yfir ábyrgð á ódæðunum. Sjálfsvígssprengjumaður banaði til að mynda tveimur lögreglumönnum í borginni í maí síðastliðnum. Þá sprengdu þrír vígamenn ísamtakanna sig í loft upp á alþjóðaflugvellinum í Istanbúl í síðasta mánuði með þeim afleiðingum að 44 létu lífið.
Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent Fleiri fréttir Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Sjá meira