Lífið

Áhorfandi stal senunni á Rihanna tónleikum og söng eins og engill - Myndbönd

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svakaleg rödd.
Svakaleg rödd. vísir
Terah Jay er gríðarlega mikill aðdáandi Rihanna og var hann staddur á tónleikum í Flórída með poppdívunni á dögunum.

Rihanna er um þessar mundir á tónleikaferð um heiminn og er hún að fylgja eftir nýrri plötu sinni, ANTI.

Jay var staddur alveg við sviðið þegar hún rétti honum hljóðnemann í miðjum flutningi á laginu FourFiveSeconds.

Hann var ekki lengi að átta sig og tók við. Það sem kom stórkostlega á óvart var að maðurinn syngur alveg eins og engill og var henni mjög brugðið þegar hún heyrði röddina. Hún leyfði því honum að taka aðra línu í laginu og salurinn gjörsamlega trylltist.

Hér að neðan má sjá myndbönd frá atvikinu og einnig fallegan flutning frá Terah Jay af laginu I´m gonna find Another you.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.