Drogba frétti að hann væri ekki í byrjunarliðinu og neitaði þá að spila Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. október 2016 10:00 Didier Drogba er meiri byrjunarliðsmaður. vísir/getty
Fílabeinsstrendingurinn Didier Drogba neitaði að spila afar mikilvægan leik með liði sínu Montreal Impact í MLS-deildinni í Bandaríkjunum þegar honum var sagt að hann myndi ekki vera í byrjunarliðinu. Montreal gat tryggt sér sæti í úrslitakeppni MLS-deildarinnar með jafntefli gegn Toronto í gær en fyrir leikinn tilkynnti liðið á Twitter að Drogba yrði ekki með vegna bakmeiðsla. Það kom ekki að söm því liðin skildu jöfn, 2-2, og Montreal komst í úrslitakeppnina. Mauro Biello, þjálfari Montreal Impact, nennti aftur á móti ekki að taka þátt í þessu meiðslaleikriti félagsins og staðfesti orðróminn um að Drogba vildi ekki spila eftir að honum var sagt að hann myndi koma inn af bekknum. „Didier var ekki valinn í byrjunarliðið. Ég sagði honum það daginn fyrir leikinn en hann samþykkti ekki að koma inn af bekknum. Á endanum vildi hann ekki vera í 18 manna hópnum. Hann einfaldlega sætti sig ekki við að koma inn af bekknum,“ sagði Biello eftir leikinn. „Hann var vissulega aumur í bakinu en hann gat spilað. Félagið þarf nú að leysa þetta mál,“ sagði Mauro Biello. Drogba er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Montreal en hann kom til liðsins á miðju tímabili í fyrra og skoraði tólf mörk í fjórtán leikjum. Hann er núna búinn að skora tíu mörk í 22 leikjum.
Fótbolti Mest lesið Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Tók einn og hálfan tíma að finna ungu hjólreiðakonuna sem lést Sport Ekki ánægður með stöðu Hákons Rafns Fótbolti Þúsund Walesverjar í Dalnum og Åge kallar eftir hjálp Fótbolti Landsliðshópurinn: Sverrir kemur inn og Brynjólfur valinn Fótbolti Margbrotnaði á andliti, gæti verið dofinn fyrir lífstíð en ætlar að spila áfram Sport Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Enski boltinn Snýr aftur heim í KR Íslenski boltinn Í beinni: Liverpool - Bologna | Ítalskir gestir á Anfield Fótbolti Sakar leikmenn United um leti á æfingum Enski boltinn Fleiri fréttir Klúðruðu víti og skoruðu tvö sjálfsmörk Í beinni: Liverpool - Bologna | Ítalskir gestir á Anfield Í beinni: Aston Villa - Bayern | Stórveldi á Villa Park „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Þúsund Walesverjar í Dalnum og Åge kallar eftir hjálp Snýr aftur heim í KR Kristian ekki spilað nóg en fer í U21 Dæmdi ekki í Meistaradeildinni eftir að hafa hótað að drepa leikmann Ekki ánægður með stöðu Hákons Rafns Enn pláss fyrir Aron sem fer í segulómun Landsliðshópurinn: Sverrir kemur inn og Brynjólfur valinn Hættir við að hætta til að mæta Íslandi Sjáðu markaflóðið úr Meistaradeildinni Sonur Sterlings leiddi Saka út á völlinn Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Slæm höfuðmeiðsli Le Normand eftir áreksturinn við Tchouaméni Dortmund í sjöunda himni | Stórsigrar hjá Barcelona og Inter Öruggt hjá Skyttunum Þægilegt í Slóvakíu Á met sem enginn vill Brest tímabundið á topp Meistaradeildarinnar Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka „Vil ekki snúa þessu upp í sápuóperu“ Chiesa ekki með gegn Ítölunum Tarik í bann eftir fræknu frammistöðuna Sonur Zlatans í fyrsta sinn í landslið Klopp heiðraður af Þýskalandsforseta Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Sjá meira