Innlent

Heimilisofbeldi og stútar á borði lögreglu

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Kolbeinn Tumi
Karlmaður var handtekinn í austurbæ Reykjavíkur í nótt en hann er grunaður um að hafa beitt maka sinn ofbeldi á heimili þeirra. Hann var vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður í dag.

Þá voru þrír handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengist og/eða fíkniefna. Samkvæmt dagbók lögreglu var einn þeirra færður í fangageymslur þar sam á honum fundust fíkniefni. Hann verður yfirheyrður í dag sökum vímuástands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×