Innlent

Niðurrif 109 ára húss heimilað

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
"Við viljum að það sama gildi fyrir alla í hverfinu,“ segir Sölvi Sveinbjörnsson, einn nágrannanna sem mótmæltu breyttu deiliskipulagi fyrir Hellubraut 5 og 7.
"Við viljum að það sama gildi fyrir alla í hverfinu,“ segir Sölvi Sveinbjörnsson, einn nágrannanna sem mótmæltu breyttu deiliskipulagi fyrir Hellubraut 5 og 7. vísir/eyþór
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti í gær að leyfa niðurrif á 109 ára gömlu húsi og breytt deiliskipulag fyrir lóðirnar Hellubraut 5 og 7 sem gerir eigandanum kleift að byggja þar tvö mun stærri hús en áður var heimilt.

Nágrannar í húsunum í kring gerðu margar athugasemdir við áformin en skipulagsfulltrúi bæjarins lagði til að breytingin yrði samþykkt og var það gert í gær.

„Það hafa verið lagðar fram skuggavarpsmyndir og sneiðingar í byggðina sem sýna glögglega að fyrirhugað hús er lægra en núverandi hús sem verður rifið. Og það dregur úr skuggavarpi og eykur útsýni nærliggjandi húsa,“ sagði Ólafur Ingi Tómasson, formaður skipulagsráðs og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sem er í meirihlutasamstarfi við Bjarta framtíð.

Adda María Jóhannsdóttir úr Samfylkingu minnti á að meirihluti bæjarstjórnar hefði á síðasta kjörtímabili hafnað sambærilegri ósk húseigandans, meðal annars vegna þess að húsafriðunarnefnd taldi að varðveita ætti húsið til framtíðar. Við afgreiðslu málsins nú liggur hins vegar fyrir umsögn Minjastofnunar sem leggst ekki gegn niðurrifi hússins.

„Mér er eiginlega ómögulegt að átta mig á því hvað hafi raunverulega breyst,“ sagði Adda María um þessu stefnubreytingu varðandi varðveislugildi hússins. Þá gagnrýndi hún að verið væri að deiliskipuleggja tvær lóðir inn á reit sem hafi verið deiliskipulagður fyrir aðeins fimm árum. Nýtingarhlutfall lóðarinnar væri aukið um 60 prósent miðað við það sem var í gildi fyrir 2011.

„Þarna er erindi sem er búið að vera í kerfinu, það er að koma aftur, það er búið að vera lengi, þetta er sami eigandi, hann ætlar sér greinilega í gegn með þetta. Hann er að ná aðeins betri árangri núna. Ég velti fyrir mér bara yfir hvaða kaffibolla eða á hvaða holu þetta var ákveðið eða rætt,“ sagði Adda María og var þar að vísa til vinfengis húseigandans við Ólaf Inga bæjarfulltrúa og það að þeir leika golf saman og eru flokksbræður í Sjálfstæðisflokknum.

Ólafur Ingi Tómasson.
Ólafur Ingi lét þessari athugasemd ósvarað. Hann sagði hins vegar að til þess að nauðsynlegt hafi verið að breyta byggingarreitunum vegna staðsetningar gömlu húsanna. Auk einbýlishússins eru bílskúr og geymsla byggð 1940 og 1945 á lóðinni.

Borghildur Sturludóttir arkitekt, bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar, sagði einnig að ekki hafi verið hægt að fylgja fyrra deiliskipulagi.

„Við höfum verið að spyrja krítískra spurninga. Við teljum að verkefnið sem slíkt og það sem verið er að kynna okkur sé bara gott og sé sannfærandi á þessum stað,“ sagði Borghildur og vísaði til skipulagslaga. „Það má taka út lóðir og gera breytingar á þeim þegar reitur í gildi er til staðar.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×