Pappírsskutlan hélt að hún væri búmerang Jóhann Óli Eiðsson skrifar 14. mars 2016 23:38 Gleðin var einlæg.
Japanir hafa löngum verið þekktir fyrir það að ná langt á sviðum sem aðrir hafa ekki lagt mikla vinnu í að skara fram úr á. Eitt þeirra sviða er pappírsskutlugerð enda höfðu Kínverjar og Japanir forskot á aðrar byggðir heimsins í upphafi. Fyrir skemmstu smíðaði Japaninn Ikuya Hara skutlu og náði skrambi góðu kasti sem eflaust fáir, ef einhverjir, hafa náð á undan honum. Kastinu deildi hann á Twitter svo heimsbyggðin gæti notið þess með honum. Svo virðist nefnilega vera að skutlan hafi misskilið hlutverk sitt og talið sig vera búmerang. Í það minnsta hegðar hún sér sem slík. Þó má gera ráð fyrir að vindur hafi haft talsverð áhrif. Þrátt fyrir að skutlan hafi svifið lengi, og ferill hennar verið helst til óvenjulegur, þá á Hara enn langt í land með að ná heimsmeti landa síns, Takuo Toda, yfir lengsta flug pappírsskutlu í heimi. Sérstök, og nánast einstök, hönnun Toda gerði það að verkum að skutla frá honum sveif í 27,9 sekúndur árið 2009 og stendur það met enn. Áhugasamir geta skoðað myndbandið af kasti Hara hér fyrir neðan.紙飛行機飛ばしたら奇跡起きた笑笑 pic.twitter.com/Mz38gCfEyL— はら いくや (@ikuya_10969) March 10, 2016
Mest lesið „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Lífið Ingunn Lára gengin út með Celebi Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið Það er töff að vera sauðfjárbóndi Lífið Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Lífið Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda Lífið Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Lífið Elt á röndum með drónum Lífið „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Lífið Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Lífið Fleiri fréttir „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Hlýlegt einbýli úr smiðju Rutar Kára Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Þraukuðu saman í tvo mánuði Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi „Herra kerran er til sölu“ Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Laufey og Júnía í fremstu röð í París Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F Flogið þangað sem enginn kemst nema í draumi Sjá meira