Enski boltinn

Lampard vonast eftir símtali frá Chelsea

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Chelsea-goðsagnirnar tvær, Lampard og Terry.
Chelsea-goðsagnirnar tvær, Lampard og Terry. Vísir/Getty
Frank Lampard vonast til að snúa aftur til Chelsea á næstunni en þessi 38 árs gamli miðjumaður er án félags þessa dagana.

Lampard var ásamt John Terry andlit Chelsea í rúmlega áratug og átti hann stóran þátt í flestum titlum liðsins frá aldarmótum.

Eftir þrettán ár í herbúðum Chelsea lék Lampard í tvö tímabili með New York City og tímabil með Manchester City.

Hann vildi ekki útiloka að leika aftur fyrir Chelsea en vonaðist einnig eftir starfi tengdu félaginu.

„Ég er ennþá að bíða eftir nýjum fimm ára samning frá Chelsea,“ sagði Lampard léttur og hélt áfram.

„Ég og John erum bláir í gegn og líf mitt mun snúast áfram í kringum Chelsea. Hvort sem það verður sem starfsmaður eða miðahafi á vellinum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×