Hún byrjar á því að baka þrefalda súkkulaðiköku eftir gamalli uppskrift ömmu sinnar og setur súkkulaðikrem á milli og yfir. „Ég fer svo bara út í Nammiland og kaupi það sem mér finnst passa saman og dunda mér svo við að skreyta kökuna með nammi og lituðu kremi frá Betty Crocker,“ segir Ragnheiður. Aðspurð segir hún verkið krefjast mikillar nákvæmni og geta tekið hátt í sex tíma. „Það borgar sig samt yfirleitt því kakan sómir sér vel á borði og gleður gesti.“
Ragnheiður útskrifaðist með BS-gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands í vor. Hún starfar sem stendur í versluninni Geysi en stefnir á arkitektúr-verkfræði í Danmörku þegar fram líða stundir. Aðspurð segir hún mikið af verkfræðingum í fjölskyldunni og að margir séu listrænir. „Það getur skilað sér yfir í matargerð og bakstur eins og annað.“
Súkkulaðikaka
Botn
3 1/3 bollar hveiti
2/3 bollar kakó
1 tsk. salt
2 tsk. lyftiduft
2 bollar sykur
1 bolli mjúkt smjör
2 bollar súrmjólk
Blandið saman þurrefnum. Bætið smjöri og súrmjólk saman við og hrærið vel. Skiptið deiginu í þrennt og setjið í form. Bakist við 180°C á blæstri í 20-22 mín.
Krem
4 bollar flórsykur
9 msk. mjólk
4 msk. kakó
150 g mjúkt smjör
1-2 tsk. kanill (valfrjálst)
Blandið saman flórsykri og mjólk, og kakói og smjöri. Sameinið blöndurnar tvær og þeytið. Fyrir auka jólabragð er gott að bæta við smá kanil.
