Viðskipti innlent

21% farþegaaukning hjá Icelandair

Sæunn Gísladóttir skrifar
Sætanýting í millilandaflugi hefur aldrei verið meiri í mars.
Sætanýting í millilandaflugi hefur aldrei verið meiri í mars. Fréttablaðið/Vilhelm
Í mars flutti Icelandair Group 221 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 21 prósent fleiri en á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 20 prósent. Sætanýting var 84 prósent og jókst um 1,4 prósentustig á milli ára og hefur aldrei verið hærri í mars segir í tilkynningu.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 24 þúsund í mars og fjölgaði um 2 prósent á milli ára.  Framboð félagsins var aukið um 1 prósent samanborið við mars 2015. Sætanýting nam 73 prósent og lækkaði um 0,3 prósentustig á milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 8 prósent á milli ára.  Fraktflutningar jukust um 1 prósent frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 9 prósent miðað við mars á síðasta ári. Herbergjanýting var 81,2 prósent samanborið við 78,8 prósent í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×