Viðskipti innlent

Veita ekki ráðgjöf vegna stofnunar aflandsfélaga

jón hákon halldórsson skrifar
Hagnaður bankanna þriggja var 106,8 milljarðar á síðasta ári. Þetta er mesti hagnaður á einu ári frá hruni.
Hagnaður bankanna þriggja var 106,8 milljarðar á síðasta ári. Þetta er mesti hagnaður á einu ári frá hruni.
Talsmenn viðskiptabankanna þriggja segja allir að frá því að bankarnir voru stofnaðir haustið 2008 hafi þeir ekki aðstoðað einstaklinga eða lögaðila við að stofna reikninga eða félög á aflandssvæðum.

Óhætt er að segja að umræða um aflandsfélög hafi skekið íslenskt samfélag undanfarið eftir að Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, sagði frá því að hún ætti félagið Wintris sem skráð er á Bresku Jómfrúaeyjunum. Síðar hefur komið í ljós að tveir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins og tveir borgarfulltrúar tengdust aflandsfélögum. Þá var greint frá því í Kastljósþætti að sex hundruð íslenskir einstaklingar eða lögaðilar ættu 800 félög sem skráð væru á aflandssvæðum.

Komið hefur fram að mörg þeirra félaga sem voru stofnuð voru stofnuð með aðstoð Landsbankans í Lúxemborg sem var dótturfélag gamla Landsbankans. Í yfirlýsingu sem birtist á vef nýja Landsbankans í gær kemur fram að bankinn hafi ekki veitt sambærilega ráðgjöf frá því að hann var stofnaður og muni ekki gera. Þetta er í samræmi við stefnu sem Landsbankinn hf. setti árið 2010 þar sem mikil áhersla er lögð á samfélagslega ábyrgð.

Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion banka, segir jafnframt að bankinn veiti ekki þjónustu af þessu tagi og Edda Hermannsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, segir hið sama. „Íslandsbanki hefur hvorki aðstoðað einstaklinga né lögaðila við að stofna reikninga eða hlutafélög á aflandssvæðum. Slík þjónusta hefur ekki verið hluti af skilgreindu vöruframboði bankans eftir að hann var stofnaður í október 2008,“ segir í svari Eddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×