Innlent

Skjálftahrina við Grímsey

Gissur Sigurðsson skrifar
Snarpasti skjálftinn mældist 2,8 stig en aðrir voru vægari.
Snarpasti skjálftinn mældist 2,8 stig en aðrir voru vægari. Skjáskot/Vedur.is
Jarðskjálftahrina hófst um það bil 13 kílómetra norðaustur af Grímsey í nótt og stóð enn undir morgun. Snarpasti skjálftinn mældist 2,8 stig en aðrir voru vægari.

Þetta er þekkt skjálftasvæði og er hrinan því ekki talinn fyrirboði frekari tíðinda.

Annars var skjáftaavirkni með nokkuð hefðbundnum hætti í nótt, nema hvað skjálfti varð í Langjökli í nótt, sem er nokkuð fátítt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×