Costa lét spænsku pressuna heyra það: „Fengi hrós ef ég spilaði fyrir Real eða Barca“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. september 2016 09:00 Diego Costa vill fá hrós þegar hann á það skilið. vísir/getty
Diego Costa, framherji Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, lét spænska blaðamenn heyra það eftir 2-0 sigur Spánar á Belgíu í vináttuleik í gærkvöldi. Hann vill meina að hann fengi hrós þegar hann á það skilið ef hann væri leikmaður spænsku risanna Real Madrid eða Barcelona. Costa hefur litlu sem engu skilað fyrir spænska landsliðið eftir að hann tók upp spænskt ríkisfang og skipti um landslið en hann er fæddur í Brasilíu og á tvo leiki að baki fyrir uppeldisþjóð sína. Framherjinn öflugi hefur aðeins skorað einu sinni í ellefu leikjum fyrir Spán en hann kom inn á sem varamaður í fyrri hálfleik í gær fyrir meiddan Alvaro Morata og lagði upp fyrra mark Davids Silva. Costa varð var við gagnrýni í sinn garð eftir leikinn og lét menn vita að hann væri ekki sáttur með þessa endalausu gagnrýni þegar hann ætti hana ekki skilið. „Ef ég væri leikmaður Real Madrid eða Barcelona fengi ég hrós. Ég hef stundum spilað illa en þó ég skori ekki verðið þið að segja sannleikann. Mig hefur skort mörk en þau koma,“ sagði Costa. „Fjölmiðlarnir eru ekkert alltaf að ljúga þegar þeir segja að ég hafi ekki spilað vel fyrir landsliðið en þið verðið að segja satt þegar ég spila vel. Þetta var líklega einn besti leikur minn fyrir Spán. Stundum hef ég ekkert pælt í þessari gagnrýni en stundum gerið þið úlfalda úr mýflugu,“ sagði Diego Costa.
Fótbolti Mest lesið Sagan endalausa hjá Åge: „Þetta er frekar sjokkerandi“ Fótbolti Bellamy skammaði blaðamenn eftir leik Fótbolti Kári sagði Kolbein steinsofandi: Það versta er að þeir vissu þetta Fótbolti Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Enski boltinn Stefnir í stríð á milli tveggja af stærstu handboltafélögum heims Handbolti Hareide kallar Sævar Atla inn Fótbolti Æfir hjá gamla félagi föður síns Fótbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 28-22 | Ekkert hik á Valskonum Handbolti Einkunnir Íslands gegn Wales: Varamaðurinn Logi maður leiksins eftir ótrúlega innkomu Fótbolti Albert verður ekki kallaður inn í íslenska hópinn Fótbolti Fleiri fréttir Sveindís hafði betur í toppslag Íslendingaliðanna Sædís og Vålerenga með níu fingur á titlinum Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Hareide kallar Sævar Atla inn Guðrún nálgast fullkomnun Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Svekkelski Karólínu fyrir leik við liðið sem á hana Guðný lagði tvö upp í afar skrautlegum Íslendingaslag Kári sagði Kolbein steinsofandi: Það versta er að þeir vissu þetta Hareide um Orra hjá Sociedad: „Þeir eru góðir í að sjá um Skandinavana“ Saka sendur heim vegna meiðsla Myndaveisla frá tveimur gjörólíkum hálfleikjum hjá íslensku strákunum Sagan endalausa hjá Åge: „Þetta er frekar sjokkerandi“ Bellamy skammaði blaðamenn eftir leik Æfir hjá gamla félagi föður síns Stefán Teitur og Jón Dagur á leið í bann Albert verður ekki kallaður inn í íslenska hópinn Logi fær ekki seinna markið skráð á sig „Við munum læra margt af þessu“ „Við hefðum átt að skora fleiri mörk í seinni hálfleik“ Van Dijk fékk rautt spjald í kvöld Hareide: „Við gerðum skelfileg mistök“ Logi í vímu eftir leik: Ég er vanur að skora góð mörk Einkunnir Íslands gegn Wales: Varamaðurinn Logi maður leiksins eftir ótrúlega innkomu Tyrkir á toppnum eftir stórsókn en nauman sigur Twitter um leikinn: Haltu bara áfram að skína Logi Kári sagði að Kolbeinn ætti að biðja um skiptingu í hálfleik Logi jafnar með tveimur mörkum á þremur mínútum: Sjáðu mörkin Agüero fór með Barcelona fyrir dómstóla Uppgjörið: Ísland - Wales 2-2 | Logi sem þarf að verða að báli Sjá meira