Lífið

Myndlist sem minnir á frið

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
María endaði á að fara með allar myndirnar út í Viðey og setja síðustu dropana af friðarvatninu í punktinn.
María endaði á að fara með allar myndirnar út í Viðey og setja síðustu dropana af friðarvatninu í punktinn.
Ég velti lengi fyrir mér hvernig myndlist gæti nýst til þess að minna á frið í veröldinni, segir María Loftsdóttir sjúkraliði. „Úr varð að ég málaði sjö heimsálfumyndir og 196 litlar myndir, eina fyrir hvert land í heiminum, úr vatni sem rann á friðarsúluna í Viðey. Í því hlýtur mikil orka að felast.“

María lýsir því hvernig hún kom hreinu plasti fyrir meðfram súlunni á rigningardögum haustið 2014, safnaði í það vatni og setti í glerkrukkur. „Mér fannst ég hafa unnið í lottói. Svo byrjaði ég á að mála stórar heimsálfumyndir úti í eyju. Akkúrat þá var hringt í mig frá Gerðubergi til að segja mér að ég gæti fengið sýningarpláss haustið 2016 – sem er núna! Sýningin verður opnuð klukkan 14 á morgun.“

Hún kveðst hafa haldið áfram að mála og gert 196 litlar myndir, eina fyrir hvert land heimsins. En hún skildi eftir lítinn, hvítan punkt á öllum myndunum og endaði á að setja síðustu friðardropana þar. „Punkturinn táknar ósk mína um frið, von og gleði til handa öllum jarðarbúum,“ segir hún. „Þar með lauk ég við verkefnið sem er búið að taka um tvö ár.“





Ein mynd fyrir hvert land heimsins.
María kveðst alla tíð hafa notið þess að meðhöndla liti og pensla og sækja sér menntun í því. Hún segir flakkaraeðli í sér líka og ferðaþrána hafa borið hana til margra landa. „Nú er ég nýkomin frá Japan því ég er að byrja á næsta verkefni sem er að kynna Ísland fyrir Japönum!“

 

Greinin birtist fyrst 2. september 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×