Lífið

Septemberspá Siggu Kling – Bogmaður: Leyfðu þér að sofa aðeins meira

Elsku stórkostlegi Bogmaðurinn minn. Þú ert að fara inn í tímabil þar sem allt er að falla í ljúfa löð. Það þýðir samt ekki að það sé ekkert að fara að gerast. Þú ert bara með miklu betri yfirsýn yfir hvað er að fara að gerast og hvernig þú ætlar að gera hlutina.

Þér er að vissu leyti svolítið létt yfir því að haustið sé að koma og veturinn. Það er þinn tími þrátt fyrir að þú elskir sumarið. Því krafturinn, orkan og vinnugleðin fær góðan farveg hjá þér á veturna. Og þá ert þú sko í essinu þínu, elskan mín!

Þú ert að loka því sem hefur verið að pirra þig og þú finnur fyrir spennu yfir því sem er að fara að gerast á næstu 6 mánuðum. Þú gengur frá mörgu í september og hnýtir lausa enda. Eftir það getur þú leyft þér að slaka á í smástund.

Þú þarft að hafa mikla spennu í kringum þig, þú þrífst á orkunni og vinnur aldrei betur en þegar þú ert kominn í smá þrot með tíma.

Þú ert að vinna marga sigra á þessu sérstaka tímabili sem þú ert að fara á. Ekki láta það pirra þig þótt eitthvað gangi ekki nákvæmlega eins upp og þú skrifaðir það, því þær breytingar eru þér líka fyrir bestu ef við skoðum þær lengra fram í tímann. Þetta verður svoldið eins og þú sért að sækja um starf sem leikari í merkilegri bíómynd, þú færð aðalhlutverkið því það hæfir þér best.!

Ekki efast í eina mínútu um að þú getir tekið að þér það sem að þér verður rétt. Þú getur allt sem þú vilt.

Þú átt eftir að finna fyrir mikilli þreytu stöku sinnum, leyfðu þér þá að sofa aðeins meira. Það er mikilvægt að þú náir góðum svefni, þá finnurðu styrkinn til að takast á við erfiðleikana.

Þú fékkst mikið og frjótt hugmyndaflug í vöggugjöf, það er gott fyrir þig að hafa marga bolta á lofti, þá vinnur þú langbest. Ef þú ert í skóla eða í skrifstofuvinnu, þá gæti þér leiðst, breyttu því og settu þér ný markmið. Þetta er nákvæmlega tíminn til þess.

Október setur kraftinn þinn inn tvöfaldan og þá verður allt á fullu en ekki vanmeta september því hann setur þig í startholurnar og undirbúningurinn verður fullkominn og akkúrat það sem þú þarft.

Þú hefur verið að leita að peningum í kringum þig til þess að redda hinu og þessu. Þú munt finna leið og geta gengið frá því sem þú þarft að ganga frá.

Ef þú hefur áhuga á ástinni og ert alveg á laflausu þá gengur það upp hjá þér. En annars sýnist mér á kortunum þínum að afstaðan sé þannig að þú nennir ekki að gera nógu mikið í ástamálum. Og sért jafnvel ekki alveg tilbúinn, en um leið og þú ert tilbúinn og segir út í alheiminn: Ég er tilbúinn fyrir ástina, og tekur ímyndað hjarta þitt í hendurnar og hendir því út, þá mun rétti aðilinn grípa það og hlutirnir smella saman. Þú þarft að bara að vera tilbúinn, elskan mín, og það finnur það enginn nema þú sjálfur.

En svona þegar ég fer að hugsa það, þá er mottó Bogmannsins reyndar: Ég er tilbúinn, því núna er rétti tíminn.

Knús og kram, þín Sigga Kling

Frægir Bogmenn: Ingvar E. Sigurðsson leikari, Björgvin Franz Gíslason leikari, Edda Heiðrún Backman leikkona, Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, Sigrún í Gyðja Collection, Steindi, Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjallkona og leikkona, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður, Jói á Fabrikkunni, Sigga Dögg kynfræðingur, Hemmi, hársnillingur á Módus, Lovísa, hönnuður hjá Kjólar og konfekt.

Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 13:00 í dag og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar. Einnig má senda inn spurningar á stefanp@365.is.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.