Julian Assange tjáir sig í fyrsta skipti um nauðgunarásakanir Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. desember 2016 23:04 Julian Assange í sendiráði Ekvador í London. Vísir/EPA
Julian Assange fullyrðir að hann sé algjörlega saklaus af ásökunum tveggja sænskra kvenna um að hann hafi nauðgað þeim. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Assange sem birtist á Twitter síðu Wikileaks í dag. Assange hefur dvalið í sendiráði Ekvador í London síðastliðin fjögur ár vegna ásakananna, en handtökuskipun var gefin út á hendur honum. Hann gagnrýnir meðferðina á sér og segir að nú vilji hann að almenningur viti sannleikann. Assange heldur því fram að rannsókn lögregluyfirvalda á málinu haldist í beinar hendur við þátttöku hans í starfsemi uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks og sé til þess fólgin til að hefta ferðafrelsi og skaða orðspor hans.Taldi þetta vera kynmök en ekki nauðgunÍ yfirlýsingunni frá Assange lýsir hann því sem átti sér stað á milli hans og sænsku konunnar sem hann nefnir „SW.“ Assange heldur því fram að um eðlileg kynmök hafi verið um að ræða, sem hafi átt sér stað með samþykki beggja aðila. Fram hefur komið að viðkomandi kona hefur sagt frá því að hún hafi verið sofandi þegar umrætt atvik átti sér stað. Assange segir hinsvegar að hann hafi verið viss um að hún hafi verið með fullri rænu. Hann hafi einnig verið viss um að hún hafi veitt samþykki fyrir kynmökum og vísaði hann þar til smáskilaboða sem konan hafi sent honum. Hann gagnrýnir sænsk lögregluyfirvöld fyrir að hafa lekið nafni sínu til fjölmiðla þegar ákæran kom upp og þannig eyðilagt orðspor hans. Sænsk lögregluyfirvöld hafa staðfest að enn stendur yfir rannsókn á Assange.Assange releases full testimony in Swedish 'sex case': https://t.co/gifUGH5o2w PDF: https://t.co/q3Pzze6b1lHTML: https://t.co/UvmGW97cYm— WikiLeaks (@wikileaks) December 7, 2016
Mest lesið Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Innlent Helga Mogensen látin Innlent Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Innlent Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Innlent Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Innlent Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt Innlent Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Innlent Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun Erlent Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Erlent Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Innlent Fleiri fréttir Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Stefnir í sögulegan sigur hægriöfgaflokks í Austurríki Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjá meira