Formúla 1

Kvyat: Ég mun halda áfram að taka svona áhættur

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Daniil Kvyat stóð fastur á sínu gagnvart fjórfalda heimsmeistaranum Sebastian Vettel eftir keppnina.
Daniil Kvyat stóð fastur á sínu gagnvart fjórfalda heimsmeistaranum Sebastian Vettel eftir keppnina. Vísir/Getty
Nico Rosberg var fyrstur í endamark í kínverska kappakstrinum. Keppnin var gríðarlega viðburðarík og mikið var um framúrakstur og árekstra en allir luku keppni. Hver sagði hvað eftir keppnina?

Rosberg vann sína sjöundu keppni í röð í Kína í dag. Í þau níu skipti sem ökumaður hefur unnið þrjár fyrstu keppnir ársins líkt og Rosberg hefur nú gert hefur sá ökumaður orðið heimsmeistari í lok tímabilsins. Þetta var aðeins í sjötta skipti í sögunni sem allir bílar klára Formúlu 1 keppni.

„Við munum hafa gaman í bílskúrnum í dag. Ég naut akstursins í dag, ég hef aldrei átt svona jafna og góða keppni held ég,“ sagði Rosberg á verðlaunapallinum, sem var hæstánægður með dagsverkið.

„Kvyat kom á mikilli ferð inn í bil sem var ekki stórt. Ég þurfti að forða mér til að forða árekstri og lenti þá á Kimi [Raikkonen] og það er ekki gott að lenda á liðsfélaga,“ sagði Vettel á verðlaunapallinum eftir að hafa sagt nokkur vel valin orð við Daniil Kvyat rétt fyrir verðlaunaafhendinguna. Vettel fannst Kvyat hafa þröngvað sér inn í fyrstu beygju og valdið árekstri Vettel við Kimi Raikkonen.

„Við hefðum geta lent í árekstri,“ sagði Vettel.

„Við hefðum átt að ná báðum bílum á verðlaunapall. Ég er búinn að biðja Kimi afsökunar enda vissi hann ekkert afhverju ég keyrði á hann. Þetta var kappakstursóhapp en við (Vettel og Raikkonen) erum bara heppnir að við náðum að klára keppnina,“ sagði Vettel.

Kvyat var ekki sammála,benti á að hann snerti Vettel ekki og sagði ræsinguna hafa verið góða og að hann hefði tekið áhættu sem hafi skilað verðlaunasætinu.

„Ég mun halda áfram að taka svona áhættur. Það mega allir búast við því,“ sagði Kvyat léttur í bragði á verðlaunapallinum.

„Fyrir mér var þetta rökrétt leið fram úr Sebastian. Ég get ekki séð neitt að þessu. Auðvitað er Sebastian ósáttur, hann tapaði á þessu en hann keyrði á Kimi. Við eigum von á góðum uppfærslum og vonandi verða þær til þess að við berjumst um fleiri verðlaunapalla,“ bætti Kvyat við.

Lewis Hamilton með brotinn framvæng á fyrsta hring og kotrefjar á flugi.Vísir/Getty
„Þetta var erfið keppni. Mér fannst ég stöðugt vera í baráttunni og það núlstillast þegar ég tók þjónustuhlé,“ sagði Lewis Hamilton, sem tók fimm þjónustuhlé í keppninni, ræsti aftastur og endaði í sjöunda sæti.

„Nico ók án nokkurra mistaka. Það vantaði loftflæðisframmistöðu á bílinn hjá Lewis eftir að framvængurinn festist undir bílnum í upphafi. Hann átti því aðeins erfitt í dag. Það er gott að Red Bull er með í baráttunni. Ég hlakka til baráttunnar við þá,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.

„Keppnin byrjaði rosavel, en fór fljótt niður á við með dekkinu sem sprakk. Ég þurfti svo að hafa mikið fyrir því að vinna mig upp. Ég held að seinni helmingur keppninnar hafi verið einhver besta keppni sem ég hef ekið,“ sagði Daniel Ricciardo, sem endaði fjórði í keppninni á Red Bull bílnum.

„Því miður var Daniel Ricciardo 18. eftir að dekkið sprakk. Daniil Kvyat átti frábæran dag. Han hafði því miður ekki dekkin til að berjast við Sebastian undir lokin,“ sagði Christian Horner, keppnisstjóri Red Bull.

„Ef við gerðum ekki mistök við dekkjaval þá eru við einfaldlega ekki nógu snöggir til að vera í stigasæti. Ég vona að mistökum sé um að kenna,“ sagði Jenson Button sem varð 13. á McLaren bílnum.

„Þetta var góð keppni fyrir mig, þrátt fyrir að vera ekki á verðlaunapallinum. Það var frábært að halda Lewis fyrir aftan mig. Keppnin var fullkomin og ég er afar ánægður,“ sagði Felipe Massa sem varð sjötti í dag á Williams bílnum.

„Ég átti aðeins erfitt eftir ræsinguna og öryggisbíllinn hentaði okkur ekkert sérstaklega vel. Ég hefði viljað ná meiru út úr keppninni,“ sagi Valtteri Bottas sem var 10. á Williams bílnum.


Tengdar fréttir

Nico Rosberg vann í Kína

Nico Rosberg á Mercedes vann sína sjöttu keppni í röð með því að vinna í Kína. Sebastian Vettel á Ferrari varð annar og Daniil Kvyat á Red Bull varð þriðji.

Horner: Ég veit ekki hvaðan þetta kom

Nico Rosberg á Mercedes náði sínum fyrsta ráspól í ár í Kína í morgun. Tímatakan var full af atvikum. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×