Hrafnhildur Lúthersdóttir, sundkonan úr SH, komst í dag örugglega í úrslitasundið í 50 metra bringusundi á Evrópumeistaramótinu í 50 metra laug sem fer fram í Englandi þessa dagana.
Hrafnhildur sem hefur náð hreint út sagt ótrúlegum árangri á EM var sex sekúndubrotum frá því að bæta eigið Íslandsmet í undanrásunum í morgun en það virtist bara hvetja hana til dáða.
Hún náði forskoti strax á upphafsmeturunum og kom fyrst í mark í fyrri undanúrslitunum á nýju Íslandsmeti, 30,83 og bætti hún sig því um 0,11 sekúndubrot frá því í morgun.
Bætti hún með því eigið Íslandsmet sem hún setti í Kazan í ágúst 2015.
Hrafnhildur var með þriðja besta tímann í undanúrslitinum á eftir Jennie Johansson og Jenna Laukkanen en úrslitasundið fer fram 15.12 á morgun.
Hrafnhildur setti nýtt Íslandsmet er hún komst í úrslit

Tengdar fréttir

Frábær árangur íslenska sundfólksins | Tvö í úrslit og eitt silfur
Íslenska sundfólkið okkar gerði frábæra hluti á Evrópumótinu í 50 metra laug í sundi í dag, en mótið fer fram í London.

Hrafnhildur með næst besta tímann í undanrásunum
Sunddrottningin Hrafnhildur Lúthersdóttir kom í mark á 30,94 í undanrásunum í 50 metra bringusundi á EM í 50 metra laug í morgun en hún keppir í undanúrslitum síðar í dag.

Hrafnhildur í úrslit
Hrafnhildur Lúthersdóttir mun keppa til úrslita í 200 metra bringusundi á morgun á Evrópumótinu í sundi sem fer fram í London.

Hrafnhildur vann aftur til verðlauna á EM
Hrafnhildur Lúthersdóttir heldur áfram að gera frábæra hluti á EM í London. Nú vann hún brons í 200 m bringusundi á nýju Íslandsmeti.