Viðskipti innlent

Bandarísk athafnakona fjárfestir í Greenqloud

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Jón Þorgrímur Stefánsson, framkvæmdastjóri Greenqloud.
Jón Þorgrímur Stefánsson, framkvæmdastjóri Greenqloud. Vísir
Bandaríska athafnakonan Kelly Ireland hefur fjárfest í fyrirtækinu Greenqloud fyrir fjóra milljónir dollara, um 470 milljónir íslenskra króna. Mun hún taka sæti í stjórn félagsins.

Í tilkynningu frá Greenqloud segir að fyrirtækið hafi verið í örum vexti síðan félagið hætti rekstri hýsingarþjónustu og færði allan fókus á þróun hugbúnaðarins Qstack. Hefur Greenqloud átt í samstarfi við leiðandi fyrirtæki í hátækniiðnaðinum á borð við Microsoft, VMware, Hewlett Packard Enterprise, Netapp og Hitachi.

„Ég kynntist Greenqloud fyrir um 18 mánuðum síðan og hef fylgst vel með þróun félagsins síðan þá,” er haft eftir Ireland í tilkynningu. „Greenqloud hefur sýnt að það er leiðandi fyrirtæki í hugbúnaðarþróun á þessum markaði.“

Kelly Ireland er stofnandi og framkvæmdastjóri CB Technologies. Kelly hefur starfað í upplýsingatæknigeiranum síðan 1976 og starfað sem endursöluaðili síðan 1984. Hefur hún leiðbeint og talað á fjölda atburða fyrir konur í atvinnulífinu og hlaut viðurkenningu sem „WBE’s Who Rock“ sem MBE Tímaritið veitti á WBENC ráðstefnunni og var nefnd sem ein af 100 áhrifamestu stjórnendunum í nýsköpun af CRN árið 2015.

„Kelly Ireland hefur gríðarlega mikla reynslu úr tæknigeiranum eftir að hafa rekið tæknifyrirtækið CB technologies í Bandaríkjunum með virkilega góðum árangri. Að fá hana í hóp fjárfesta félagsins og í stjórnina, fellur mjög vel að markmiðum okkar um að fá virðisaukandi aðila að félaginu. Kelly er mikill fengur fyrir Greenqloud á þessum tímapunkti og ég efast ekki um að hún mun hjálpa okkur að fullnýta þá aukningu á eftirspurn sem hefur orðið á okkar lausn á heimsvísu.“ segir Jón Þorgrímur Stefánsson, framkvæmdastjóri Greenqloud.


Tengdar fréttir

Leiddu fagfjárfesta og nýsköpunarfyrirtæki saman

Kauphöllin hélt nýverið sitt fyrsta svokallaða Stefnumót við nýsköpunarfyrirtæki – lokaðan fund fagfjárfesta og nýsköpunarfyrirtækja sem komin eru nokkuð á legg. Á fundinum kynntu ellefu stjórnendur ellefu fyrirtækja starfsemi þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×