Með mikla ástríðu fyrir frumkvöðlum 4. nóvember 2016 10:30 "Ég hef brennandi ástríðu fyrir frumkvöðlum og ekki síst að fjölga konum á meðal þeirra hér í Noregi," segir Lauga Óskarsdóttir.
Sigurlaug Óskarsdóttir, betur þekkt undir nafninu Lauga, hefur búið og starfað í Noregi og New York að mestu leyti síðan 1996. Undanfarin ár hefur hún einbeitt sér að stofnun, rekstri og verkefnum innan nokkurra frumkvöðlafyrirtækja en nýlega tók hún við starfi framkvæmdastjóra hjá StartupLab en þar fann hún köllun sína í lífinu árið 2013; þegar hún ákvað að starfa innan frumkvöðlageirans. Fram undan eru spennandi ár og verkefni þar sem markmiðið er m.a. að stórauka hlut kvenna hjá frumkvöðlum í Noregi. Dvöl hennar ytra hófst árið 1996 þegar fjölskyldan flutti til bæjarins Elverum í Noregi. Í upphafi ætlaði hún að stoppa í eitt ár en þau urðu á endanum þrettán. „Pabbi fékk starf sem handboltaþjálfari og ári síðar fluttum við til Drammen. Foreldrar mínir opnuðu bakarí í nálægum bæ og seldu m.a. snúða, kleinur, kringlur og rúgbrauð auk norskra og ítalskra brauða. Þau unnu langa vinnudaga og ég sá því fljótt hversu erfitt, en um leið gefandi, það var að reka eigið fyrirtæki.“ Lauga var fljót að læra norskuna en segist þó hafa verið lengur að tengjast norskri menningu og siðum. „Ég man að mér þótt Noregur kaldur og allt of snjóþungur. Svo áttu allir skíði en ég skildi aldrei „hæpið“ kringum þau. Raunar geri ég það ekki enn en hef þó lofað kærastanum mínum að prófa gönguskíðin í vetur. Fjölskyldan er búin að leigja skála í Synnfjell og ég segi stundum í gríni hann sé síðasta tilraun okkar til að samlagast norsku samfélagi enda elska Norðmenn svo sannarlega skálana sína.“Lauga í grunnbúðum Mt. Everest.Rússíbanareið í New York Eftir framhaldsskóla hélt Lauga til New York þar sem hún lauk námi í alþjóðaviðskiptum frá Berkeley háskóla í New York. Meðfram námi vann hún í fullu starfi; fyrsta árið sem sjálfboðaliði fyrir hjálparsamtök, næsta ár í fasteignabransanum og lokaárin þrjú sem markaðsstjóri hjá flutningafyrirtæki. „Árin í New York voru svo sannarlega eins og rússíbanareið. Þar lærði ég margt um sjálfa mig, hæfni mína og eigið gildismat. Hraðinn var rosalega mikill og vinnuumhverfið er vægðarlaust þar sem ríkir nánast ekkert jafnvægi milli starfsframa og fjölskyldunnar.“ Eftir fimm annasöm ár í stórborginni var hún tilbúin að prófa eitthvað nýtt. Noregur var þó ekki inni í myndinni strax og því ákvað hún að fara til Íslands. „Ég þurfti tíma til að melta það sem ég hafði lært síðustu ár í New York og finna út hvað ég vildi gera í kjölfarið. Því ákvað ég að flytja heim til Íslands til að stækka tengslanetið og kynnast landinu betur.“ Óhætt er að segja að hún hafi prófað nýja hluti þá mánuði sem hún stoppaði hér. Bæði vann hún í hlutastarfi hjá hópfjármögnunarsíðunni Karolina Fund auk þess að starfa á Svöluhrauni í Hafnarfirði sem er sambýli fyrir fatlaða. „Ég vildi prófa eitthvað algjörlega nýtt og satt að segja var þessi tími ótrúleg lífsreynsla. Hópurinn sem stóð að baka Karolina Fund var frábær og það var ótrúlega gefandi að kynnast fólki sem byggði upp þetta samfélag kringum hugmyndir sínar af allri þessari ástríðu.“Lauga Óskarsdóttir starfar með frumkvöðlum í Noregi.Eftir nokkra mánuði á Íslandi flutti hún aftur til Noregs þar sem hún tók við starfi markaðsstjóra hjá DoHop í Noregi. „Ég leigði borð hjá StartupLab, sem er n.k. frumkvöðlasetur fyrir sprotafyrirtæki í tæknigeiranum, og fannst ég strax einhvern veginn komin heim. Að vera umkringd metnaðarfullu fólki sem leggur allt í sölurnar og þorir að takast á við ögrandi áskoranir var eitthvað fyrir mig. StartupLab var því síðasta skrefið hjá mér í leitinni, þarna fann ég að ég vildi vera frumkvöðull.“Lærdómsríkur tími Ári síðar stofnaði hún fyrsta fyrirtæki sitt, United Influencers Media Group, ásamt félögum sínum. Fyrirtækið er stafræn markaðsstofa sem hjálpar vörumerkjum að tengjast leiðandi notendum (áhrifavöldum) og skapa þannig tækifæri fyrir þá til að hanna markaðsefni sem vænlegir viðskiptavinir tengjast betur, t.d. gegnum Facebook, Instagram, YouTube og Snapchat. „Í dag er fyrirtækið með skrifstofur í Ósló, Stokkhólmi og Malmö og meðal viðskiptavina eru knattspyrnustjörnunar Zlatan Ibrahimovic og Messi auk fjölda frægra einstaklinga á Norðurlöndum. Rekstrartekjur fyrsta ársins voru um 200 milljónir króna og við höfum nú þegar tvöfaldað þá upphæð í ár. Þetta er búið að vera spennandi tími og um leið mjög lærdómsríkur. Nú er ég nýbúin að skipta um starf en mun sitja áfram í stjórn fyrirtækisins og er auk þess einn eigenda.“ Nýja starfið sem Lauga vísar í er framkvæmdastjórastaða innan StartupLab þar sem frumkvöðlaferðalag hennar hófst árið 2013. „Við hýsum 72 frumkvöðlafyrirtæki og um 250 starfsmenn. Markmið okkar er að auka enn frekar vöxt þessara fyrirtækja og um leið að tengja þau við fjárfesta, viðskiptavini og ýmsa ráðgjafa. Auk þess rekum við fjárfestasjóð sem heitir Founders Fund, en á bak við hann standa nokkrir sterkir fjárfestar, m.a. Jon Von Tetzchner sem hefur verið áberandi í íslensku og norsku viðskiptalífi undanfarin ár.“ Auk þess situr Lauga í stjórn Norsk-íslenska verslunarráðsins, Funde.no sem er norsk hópfjármögnunarsíða og í stjórn tónlistarhátíðarinnar og sýningarinnar by:Larm.Í fjallgöngu á Cortina D’Ampezzo á Ítalíu sumarið 2016.„Ég hef brennandi ástríðu fyrir frumkvöðlum og ekki síst að fjölga konum á meðal þeirra hér í Noregi. Það vantar sárlega fleiri konur á þessum vettvangi. Þótt jafnrétti kynjanna sé vel á veg komið á Norðurlöndum sjáum við það ekki endurspeglast hjá frumkvöðlafyrirtækjum.“ Hún segir fjölbreytni í rekstri fyrirtækja og nýsköpun skipta miklu máli og þar halli verulega á konur. „Þetta snýst ekki bara um að fjölga kvenkyns frumkvöðlum heldur líka fjárfestum, stjórnarmeðlimum og stjórnarformönnum. Á þessum stigum eru mikilvægustu ákvarðanirnar teknar. Rannsóknir hafa enda sýnt að fyrirtækjum gengur betur þar sem konur koma að stjórn, samanborið við þau sem er bara stýrt af körlum.“Fær orku á fjöllum Vinnudagarnir eru langir og strangir hjá Laugu og sumarfríin eru stutt. Helsta ástríða hennar utan vinnunnar er fjallaklifur en hún reynir að fara í a.m.k. eina stóra ferð á ári. „Ég finn alltaf tíma fyrir ferðalög og fjallaklifur enda fæ ég svo mikla orku þaðan. Auk þess eru fjöllin besti staðurinn til að átta sig á eigin áskorunum sem gaman er að sigrast á. Mér tókst t.d. að yfirvinna lofthræðsluna síðasta sumar þegar ég komst á topp Punta Anna sem er 2.346 metra hátt. Fjallaklifur og rekstur fyrirtækis eru lík að mörgu leyti en þar verður maður að ýta óttanum til hliðar og stíga út fyrir þægindarammann. Svo kemst þetta upp í vana. Einn af gömlu viðskiptavinum mínum frá New York-árunum er góður vinur minn og við förum saman árlega í góða fjallaferð. Undanfarin ár höfum við m.a. klifrað á Íslandi, Púertó Ríkó, Jómfrúaeyjunum, í Nepal, á Ítalíu og í Noregi.“ Fram undan í vetur er mikil vinna tengd nýja starfinu hjá StartupLab en þar bíða hennar m.a. þau verkefni að kynnast frumkvöðlunum og fyrirtækjum þeirra, kynnast norsku efnahagsumhverfi og að klára stefnumótunarvinnu fyrir StartupLab með teyminu sínu. Þó er ekki eintóm vinna framundan. „Um jólin ætla ég til Höfðaborgar í Suður-Afríku að sörfa, klifra og skoða mig um með kærastanum og nokkrum vinum okkar. Auk þess ætlum við kærastinn að eyða næstu áramótum í Marokkó á ferðalagi milli Casablanca og Marrakech. Þannig að það eru sannarlega spennandi og skemmtilegir tímar fram undan.“
Mest lesið Ein glæsilegasta skvísa landsins komin á fast Lífið Stjörnulífið: Sjóðheitar stjörnur í fimbulkulda Lífið Má gæi úr Húsasmiðjunni vera á listanum þínum? Lífið Dóttir Anítu og Hafþórs komin í heiminn Lífið Reykti pabba sinn Lífið Ragga Sveins snýr aftur til Íslands Lífið Helgi Björns tryllti lýðinn á 40 ára afmæli Gagnrýni Ferðast umhverfis jörðina á 38 dögum Lífið Tara Sif og Elfar selja íbúðina Lífið Innlit í nýuppgerða íbúð Kára Sverris Lífið Fleiri fréttir Gervigreindin stýrði ferðinni Ein glæsilegasta skvísa landsins komin á fast Gervigreindin heillar Ólaf Ragnar upp úr skónum Reykti pabba sinn Er ESB og Sameinuðu þjóðunum stjórnað af valdaklíku? Dóttir Anítu og Hafþórs komin í heiminn Sér lífið í nýju ljósi eftir móðurmissinn Ragga Sveins snýr aftur til Íslands Má gæi úr Húsasmiðjunni vera á listanum þínum? Tara Sif og Elfar selja íbúðina Innlit í nýuppgerða íbúð Kára Sverris Stjörnulífið: Sjóðheitar stjörnur í fimbulkulda Ísak og Karítas orðin foreldrar eftir bráðakeisara Ferðast umhverfis jörðina á 38 dögum Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Khalid kemur út úr skápnum Skautasvellið opnað í tíunda sinn Sykurlausar og dísætar smákökur Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg Fréttatían: Gömul mannshvörf, rukkanir og gos Vængir, bjór og lófaklapp þegar Kaninn var forsýndur Kendrick Lamar gefur út óvænta plötu „Þetta var það erfitt, að við vorum öll dofin“ Lúxusíbúð við Heiðmörk með stórbrotnu útsýni Jay Leno illa leikinn og með lepp Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Sjá meira