Innlent

Berháttaði sig í gestamóttöku hótels í miðborginni

Atli Ísleifsson skrifar
Tveir ölvaðir karlmenn urðu sjálfum sér til skammar og öðrum til ama í Reykjavík í nótt.
Tveir ölvaðir karlmenn urðu sjálfum sér til skammar og öðrum til ama í Reykjavík í nótt. Vísir/Pjetur
Tveir ölvaðir karlmenn urðu sjálfum sér til skammar og öðrum til ama í Reykjavík í nótt. Annar berháttaði sig í gestamóttöku hótels í miðborginni á fjórða tímanum í nótt. Hann var ekki gestur á hótelinu og er ekki vitað hvað honum gekk til. Hann var handtekinn og fjarlægður.

Sömuleiðis karlmaðurinn, sem efndi til slagsmála við rútubílstjóra á Skólavörðuholti á fimmta tímanum. Rútan var að sækja farþega á hótel og komu farþegar bílstjóranum til aðstoðar þar til lögregla kom á vettvang.

Maðurinn hafði meðal annars gert tilraun til að komast í bílstjórasætið og þá væntanlega til þess að aka á brott, en til þess kom ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×