Enski boltinn

Ótrúlegar lokamínútur á White Hart Lane og Kane hetjan | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tottenham Hotspur vann ótrúlegan sigur á West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en leikurinn fór 3-2 á White Hart Lane í Lundúnum.

Michail Antonio kom West Ham yfir á 24. mínútu leiksins og var staðan 1-0 fyrir West Ham í hálfleik.

Harry Winks jafnaði fyrir Spurs í uppbótartíma en á 68. mínútu skoraði Manuel Lanzini fyrir gestina og kom þeim yfir.

Það leit allt út fyrir að West Ham myndi fara heim með öll stigin þrjú að framherjinn Harry Kane var alls ekkert á þeim buxunum.

Kane skoraði á 89. mínútu og jafnaði metin. Aðeins einni mínútu síðar fengu heimamenn vítaspyrnu og náði Kane að tryggja þeim stigin þrjú á ótrúlegan hátt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×