Telja árangursríkara að útrýma kvíða og þunglyndi heldur en fátækt til að auka hamingju fólks Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. desember 2016 23:32 Að mati rannsakenda æri árangursríkara fyrir stjórnmálamenn, ef þeir vilja bæta líf kjósenda sinna, að verja meira fé í að bæta geðheilbrigði. vísir/getty
Niðurstöður tímamótarannsóknar sem gerð var við háskólann London School of Economics sýna að hægt væri að lina þjáningar fólks um tuttugu prósent ef kvíða og þunglyndi væri útrýmt. Ef fátækt væri útrýmt myndu þjáningar fólks hins vegar minnka um fimm prósent ef marka má niðurstöður rannsóknarinnar. Það væri því árangursríkara fyrir stjórnmálamenn, ef þeir vilja bæta líf kjósenda sinna, að verja meira fé í að bæta geðheilbrigði að mati Richard Layard sem fór fyrir rannsókninni. Layard er hagfræðingur og hefur meðal annars unnið sem ráðgjafi fyrir fyrrverandi forsætisráðherra Verkamannaflokksins, þá Tony Blair og Gordon Brown. Í umfjöllun Guardian um rannsóknina er haft eftir Layard að á síðustu 50 árum hafi hamingja fólks ekki aukist að meðaltali þrátt fyrir að meðallaun hafi meira en tvöfaldast. Að mati rannsakendanna myndi það borga sig fyrir stjórnvöld að veita meira fé í geðheilbrigðismál þar sem atvinnuleysi myndi minnka, fleiri myndu þar af leiðandi borga skatt og færri myndu þurfa á bráðaþjónustu í heilbrigðiskerfinu að halda. „Að takast á við þunglyndi og kvíða væri fjórum sinnum áhrifaríkara en að takast á við fátækt. Það myndi líka borga sig,“ segir Layard. Í skýrslu rannsakenda segir að skólakerfið verði að fara að einblína meira á það að hlúa að geðheilbrigði og andlegri líðan. „Niðurstöður rannsóknarinnar krefjast þess að ríkið hugsi hlutverk sitt upp á nýtt. Það á ekki að vinna að því að skapa auð heldur hamingju. Í fortíðinni hafa stjórnvöld tekist á við fátækt, atvinnuleysi, menntun og líkamlega heilsu. En í dag er jafn mikilvægt að takast á við heimilisofbeldi, alkóhólisma, þunglyndi og kvíða, ungmenni sem einangra sig félagslega og margt annað. Aðaláherslan ætti að vera á þessi málefni.“Nánar má lesa um rannsóknina á vef Guardian.
Mest lesið Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Innlent Helga Mogensen látin Innlent Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Innlent Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Innlent Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Innlent Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Erlent Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Innlent Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Innlent Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt Innlent Fleiri fréttir Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Stefnir í sögulegan sigur hægriöfgaflokks í Austurríki Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjá meira