Þúsundir neituðu sér um læknisþjónustu vegna kostnaðar á síðasta ári Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 12. desember 2016 10:01 Kostnaður kom í veg fyrir að um átta þúsund manns leituðu sér aðstoðar læknis. Vísir/Vilhelm
Fjórar af hverjum hundrað konum og tveir af hverjum hundrað körlum neituðu sér um þjónustu læknis eða sérfræðings árið 2015 vegna kostnaðar, eða samtals tæplega átta þúsund manns.Þetta kemur fram í Hagtíðindum Hagstofu Íslands. Þar kemur einnig fram að hlutfallslega margir á Íslandi neita sér um læknisþjónustu vegna kostnaðar miðað við önnur Evrópuríki sé tekið mið af nýjustu samanburðartölum sem eru frá árinu 2014. Þá fór ríflega þrjú prósent Íslendinga ekki til læknis vegna kostnaðar sem var sjötta hæsta hlutfallið í Evrópu. Kostnaður er meiri fyrirstaða fyrir tekjulægri hópana en þá tekjuhærri, en sex prósent fólks í tekjulægsta fimmtungnum fór ekki til læknis vegna kostnaðar á móti rúmlega eins prósent fólks í efsta tekjufimmtungi. Einnig er áætlað að um 25 þúsund manns, eða um tíu prósent fullorðinna á Íslandi, hafi árið 2015 einhvern tíma ekki farið til tannlæknis vegna kostnaðar þegar þau þurftu á því að halda, um ellefu þúsund karlar og fjórtán þúsund konur. Á heildina litið er hlutfall þeirra hátt á Íslandi sem ekki fóru til tannlæknis þrátt fyrir að þurfa þess sé horft til Evrópu. Hlutfall kvenna sem ekki fór til tannlæknis vegna kostnaðar reyndist vera það fjórða hæsta í Evrópu og hlutfallið meðal karla það fimmta hæsta.Mynd/Hagstofa Íslands
Mest lesið Greip til hnífs því hún óttaðist að sonurinn kæmi að sér látinni Innlent Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent „Ég leyni því ekki að við erum í vanda stödd“ Innlent „Mönnum finnst að lögin eigi ekki að gilda þegar réttlæti þeirra er annað“ Innlent Halda íshellaferðum áfram þrátt fyrir að fá ekki leyfi Innlent Peskov staðfestir að Rússar hafi fengið Covid-próf frá Bandaríkjunum Erlent Kynferðisofbeldið sýnt í dómsal Erlent Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Innlent Ethel Kennedy er látin Erlent Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða Innlent Fleiri fréttir Grunar að veikindi flugáhafna tengist efni sem finnst í smurolíu Líklega aldrei fjölmennari viðskiptasendinefnd í opinberri heimsókn „Grafalvarlegt mál“ ef af verkföllum verður „Þetta er allt komið í einhvern hrærigraut“ Ríkisstjórn í vanda stödd Þyrlan kölluð út vegna slyss en afturkölluð „Ég leyni því ekki að við erum í vanda stödd“ Halda íshellaferðum áfram þrátt fyrir að fá ekki leyfi Sjö vilja verða varaseðlabankastjóri Þögull sem gröfin um aðgerðir í öðrum framhaldsskóla Bein útsending: Nýir tímar í landbúnaði Greip til hnífs því hún óttaðist að sonurinn kæmi að sér látinni „Mönnum finnst að lögin eigi ekki að gilda þegar réttlæti þeirra er annað“ Kæru Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna Búrfellslundar vísað frá „Innbrotsboð“ frá banka og angistarhljóð unglinga Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Engin afsökun lengur fyrir því að mæta ekki í brjóstaskimun Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Ekki útilokað að fleiri skólar bætist í hópinn Verkfallsnemendur með áhyggjur af náminu og tendrun jólageitarinnar Skýrist á mánudag hvort læknar fari í verkfall Misspennt fyrir verkfalli: „Þetta er fínt, meira frí“ Fjármálaráðherra búinn að endurskoða þjóðlendukröfur Hægir á landrisi Sjá meira