Fjórða sætið niðurstaðan hjá stelpunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. júlí 2016 18:48 Íslensku stelpurnar unnu fjóra af sjö leikjum sínum á EM. mynd/kkí
Ísland tapaði fyrir Bosníu, 82-67, í leiknum um 3. sætið í B-deild Evrópumótsins í kvöld. Íslenska liðið kemst því ekki upp í A-deild en sigur í dag hefði tryggt liðinu sæti þar. Slæmur endir á fyrri hálfleik varð íslenska liðinu að falli í leiknum í kvöld. Ísland leiddi með sex stigum, 16-22, eftir 1. leikhluta og þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik voru íslensku stelpurnar fjórum stigum yfir, 26-30. En þá sagði bosníska liðið hingað og ekki lengra. Bosnía vann síðustu fimm mínútur fyrri hálfleiks 22-6 og fór með 12 stiga forystu, 48-36, til búningsherbergja. Bosníska liðið hélt því íslenska í hæfilegri fjarlægð í seinni hálfleik og vann að lokum 15 stiga sigur, 82-67. Thelma Dís Ágústsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 16 stig en Sylvía Rún Hálfdanardóttir kom næst með 12 stig. Elín Sóley Hrafnkelsdóttir skoraði 10 stig og Emelía Ósk Gunnarsdóttir níu stig. Þá tók Þóranna Kika Hodge-Carr 11 fráköst. Íslenska liðið lauk í 4. sæti en liðið var hársbreidd frá því að komast í úrslitaleikinn og tryggja sér þar með sæti í A-deild.
Körfubolti Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Fleiri fréttir Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Martin og félagar burstuðu botnslaginn Fimm töp í röð hjá Elvari og félögum Versta frumraun í úrvalsdeild? Segist bara hafa óskað dómurunum gleðilegra jóla Selfoss fær leikmann sem hefur spilað meira en hundrað NBA leiki „Sást frekar bersýnilega að það er ekki mikið sjálfstraust í liðinu“ „Valsararnir voru bara betri“ „Við þurfum að girða okkur í jólafríinu“ Enn eitt tapið og Martin í minna hlutverki en vanalega Uppgjörið: Valur - Tindastóll 89-80 | Meistararnir upp úr fallsæti „Fyrirgefðu að ég var ekki pabbinn sem þú vildir að ég værir“ Körfuboltakvöld í beinni frá Minigarðinum „Nánast afsökuðu meðdómara sinn“ „Setjið stóra mynd af honum á skjáinn og leyfið fólki að horfa“ „Spiluðum glimrandi vel í sókn“ Uppgjörið: Keflavík - Þór Þ. 105-86 | Keflavík fór illa með Jordan-lausa Þórsara „Við þurfum bara að finna lausnir og bæta okkar leik“ Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 90-100 | Hilmar Smári í ham Uppgjörið: Álftanes - Höttur 89-92 | Ótrúleg endurkoma hjá Hetti „Leikurinn þróaðist eins og við hefðum viljað að hann þróist“ Uppgjörið: KR - Grindavík 120-112 | KR fór með sigur úr framlengingu gegn fáliðuðum Grindvíkingum Thelma og Tryggvi best í fyrsta sinn Hornets gaf dreng PlayStation 5 en tók gjöfina síðan til baka Pippen stríddi dómurunum á NBA leik Ho You Fat vill spila áfram á Íslandi: „Ég er að skoða hvað er í boði“ Þorleifur: Þetta er ákveðin skita Uppgjörið: ÍR - Haukar 93-96 | Haukar enduðu sigurgöngu ÍR Haukamaðurinn Ho You Fat í tveggja leikja bann Uppgjör og viðtöl: Valur - Grindavík 69-67 | Valssigur í háspennuleik Sjá meira
Uppgjörið: KR - Grindavík 120-112 | KR fór með sigur úr framlengingu gegn fáliðuðum Grindvíkingum