Innlent

Ekki tekið tillit til fyrri dóms yfir Gunnari vegna fyrningar sakavottorðs

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Gunnar Jakobsson
Gunnar Jakobsson
Gunnar Jakobsson var í Héraðsdómi Suðurlands í síðustu viku dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir vörslu á barnaklámi. Gunnar, áður Roy Svanur Shannon, er dæmdur barnaníðingur en ekki var tekið tillit til fyrri dóms yfir honum í málinu vegna þess að fyrri dómurinn er ekki lengur skráður á sakavottorði hans.

Hátt í 50 þúsund ljósmyndir og tæplega 500 myndskeið fundust í vörslum Gunnars í janúar 2013 og játaði hann brot sitt skýlaust.

Fram kemur í dómnum yfir Gunnari, sem er 73 ára, að samkvæmt framlögðu sakavottorði hafi hann aldrei sætt refsingu áður. Hann var hins vegar dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tuttugu árum fyrir kynferðisbrot gegn sex stúlkum og dreifingu á klámi á netinu. Gunnar flutti síðan til Noregs þar sem hann bjó um hríð en þegar hann sneri aftur hafði hann breytt nafni sínu úr Roy Shannon í Gunnar Jakobsson.

Sjá einnig: Þekktur barnaníðingur slapp með skilorð vegna dráttar á rannsókn

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari.Vísir/GVA
„Það er vísað í að hann hafi samkvæmt sakarvottorði ekki hlotið dóm. Brot manna detta út af sakavottorði til dómsdóla tíu árum eftir að dómurinn var endanlega afplánaður. Að lokinni reynslulausn og svo framvegis. Skýringin er sú að þetta er ekki inn á sakavottorði og það eru bara reglur sem um þetta gilda. Hugsunin á bakvið þær reglur er að sakavottorð manna hafi ekki áhrif þegar langur tími er liðinn frá því að brotið var framið, að eftir ákveðinn tíma þá detti þetta út og hafi þá kannski ekki áhrif við ákvörðun refsinga þegar langt er um liðið,“ segir Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari í samtali við Vísi. 

„Það er ástæðan fyrir því að þetta er sett fram með þessum hætti, en ég veit ekki hvort þetta sé heppilegasta orðalagið kannski. Af því að það segir að hann hafi ekki hlotið dóm áður samkvæmt sakarvottorðinu. Það er tæknilega alveg rétt en gefur til kynna að ekki hafi verið vitað að hann hafi áður hlotið dóm. Það hefði kannski mátt hafa einhverja tölu um það til útskýringar, svo fólk væri ekki að vandræðast yfir hvað þetta þýddi.“

Reglur um sakaskrá ríkisins eru aðgengilegar á vef Stjórnartíðinda. Í fjórða kafla laganna sem fjallar um upplýsingar af sakaskrá til dómsvalda segir að í sakarvottorði skuli ekki tilgreina upplýsingar sem skráðar hafa verið um viðkomandi einstakling eða lögaðila þegar tíu ár eru liðin frá lokun afplánunar fangelsisvistar eða lokum reynslutíma reynslulausnar meðal annars.

Í sakavottorði samkvæmt þessum kafla skal ekki tilgreina þær upplýsingar sem skráðar hafa verið um viðkomandi einstakling eða lögaðila þegar 10 ár eru liðin frá síðustu af eftirtöldum tímamörkum:

a. lokum afplánunar fangelsisrefsingar,b. lokum reynslutíma reynslulausnar,

c. uppkvaðningu úrskurðar um niðurfellingu ráðstöfunar skv. 62.-67. gr. almennra hegningarlaga,

d. lokum réttindasviptingar eða endurveitingu réttinda,

e. uppkvaðningu endanlegs dóms eða dagsetningu ákvörðunar sem ekki fellur undir a-d lið.

Þetta gildir um öll sakarvottorð til dómstóla, dómsmálaráðuneytisins, umboðsmanns Alþingis, lögreglustjóra, Fangelsismálastofnunar og Útlendingastofnunar.

Ef fólk aftur á móti sækir sakarvottorð vegna sín sjálfs og viðkomandi hefur náð fimmtán ára aldri, þá er það vottorð sem tekur til síðustu fimm ára, í stað tíu. 

Ríkissaksóknari getur þó ákveðið í sérstökum tilvikum að í sakavottorði séu upplýsingar um niðurstöður eldri mála. Til að mynda hefur Barnaverndarstofa rétt á upplýsingum úr sakaskrá um menn sem hlotið hafa refsidóm fyrir kynferðisbrot gegn barni.

„Þetta er eins og með refsiábyrgð almennt þá fyrnist hún á ákveðnum tíma, ítrekunaráhrif fyrnast og svo framvegis,“ segir Helgi.

„Ef við tökum okkur á í lífinu þá felst í þessu einhver fyrirgefning þegar nógu langur tími er liðinn.“


Tengdar fréttir

Þekktur barnaníðingur enn í haldi á Selfossi

Þekktur barnaníðingur, Gunnar Jakobsson, sem lögreglan í Árnessýslu handtók í gær, er enn í vörslu lögreglu, en ekki liggur fyrir hvort krafist verður gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir honum.

Gunnar í vikulangt gæsluvarðhald

Dómari hjá Héraðsdómi Suðurlands féllst á gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar á Selfossi um að úrskurða Gunnar Jakobsson í vikulangt gæsluvarðhald.

Samtök vistheimilabarna fordæma heimsóknir barnaníðings á fósturheimili

"Okkur er mjög brugðið að sjá þetta,“ segir Víglundur Þór Víglundsson, formaður samtaka vistheimilabarna, en sjálfur varð hann fyrir grimmu ofbeldi á Breiðavík þegar hann dvaldi þar sem barn. Samtök vistheimilabarna sendu frá sér ályktun seint í gærkvöldi þar sem þau fordæmdu ákvörðun fósturheimilis úti á landi sem leyfið barnaníðingi að umgangast börn sem þar voru í fóstri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×